Allir þátttakendur geta orðið hópstjórar. Sem umsækjandi geturðu bætt við, meðan á umsóknartímabilinu stendur, allt að fjórum vinum sem uppfylla skilyrði DiscoverEU um gjaldgengi, jafnvel þótt þú hafir tekið fram á umsóknareyðublaðinu að þú viljir ferðast ein(n) þíns liðs. Til að vinir þínir geti verið með í umsókninni þinni þarftu að láta þá hafa umsóknarkóðann sem þú færð sendan með tölvupósti. Hann verður þá kóði hópsins. Þeir verða að sækja um meðan á umsóknartímabilinu stendur, gefa upp kóða hópsins og uppfylla skilyrðin um þátttöku (sjá Reglur, kafla 2, „Gjaldgengir umsækjendur“).
B. ÚTHLUTUNARFERLI
Weight
8