Með því að ferðast svona, þá geta þátttakendur styrkt sjálfsmynd sína sem Evrópubúar og öðlast skilning á fyrir hvað ESB stendur fyrir. Þeim gefst kostur á að tengjast öðru fólki vítt og breitt um alla Evrópu, skiptast á hugmyndum við aðra og taka þátt í tengslakerfum sem ganga þvert á lönd og landamæri. Fyrir suma er þetta í fyrsta skiptið sem þau ferðast ein síns liðs. Með reynslunni sem fegin er með DiscoverEU, þá munu þau þróa með sér lykilfærni á borð við tungumálakunnáttu, sjálfstraust, aðlögunarhæfni, álagsþol, sjálfstraust, hæfni í mannlegum samskiptum og til þess að leysa vandamál, skipulagsfærni og teymisuppbyggingu. Til þess að unnt sé að skrá ofangreindan námsárangur, þá verður öllum þeim þátttakendum, sem ljúka við að fylla út könnunina sem þeir fá senda sjálfkrafa að ferð lokinni, afhent vottorð til staðfestingar á þátttökunni. Í því vottorði verður talin upp öll sú lykilfærni sem aflað var og í þeim efnum er tekið mið af hinum svonefnda Youthpass.
A. AUGLÝSING EFTIR UMSÓKNUM (REGLUR)
Weight
11