Skip to main content

Þú getur alltaf fylgst með stöðunni á umsókninni þinni á Evrópsku ungmennagáttinni. Vinsamlegast geymdu afrit af DiscoverEU umsóknarkóðanum þínum vel og vandlega. Ekki deila honum (t.d. á samfélagsmiðlum) nema með þeim viðurkennda verktaka sem framkvæmdastjórnin og EACEA tilnefna. Þar að auki fá umsækjendur tilkynningu í tölvupósti þegar matsferlinu er lokið. Það er mikilvægt að hægt sé að ná í þig í gegnum tölvupóstinn sem þú tilgreindir í umsókninni. Umsækjendur sem hafa komist á biðlista geta átt von á því að haft verði samband við þá síðar ef svo vill til að einhver hinna hlutskörpu umsækjenda ákveður að draga umsókn sína til baka eða ef þátttakendur virkja ekki ferðapassann sinn.

Þú getur fundið nánari upplýsingar í Reglunum, 6. kafla, „Niðurstöðurnar tilkynntar“.

B. ÚTHLUTUNARFERLI
Weight
3