Með sinni litríku og kraftmiklu byggingalist tekur hin portúgalska strandarborg Porto á móti þér með athyglisverðum og hjartahlýjum hætti. Borgin, sem leggur áherslu á nýsköpun og aðgengileika, fékk nýlega úthlutað styrk frá Evrópsku stofnuninni um nýsköpun og tækni, fyrir verkefni sitt Hugveita Porto.
Porto hefur einnig sett í gang verkefni um félags- og umhverfislegt aðgengi fyrir alla, sem hefur að markmiði að safna, breiða út og koma til komandi kynslóða dýrmætri þekkingu um tegundir lækningajurta.
Andaðu að þér miðaldarstemningu Porto með því að rölta um lifandi götur Ribeira-hverfisins. Borgin, sem listuð er á heimsminjastaðalista UNESCO, býður upp á fjölda staða við árbakkann þar sem hægt er að sitja og njóta andrúmsloftsins og kræsinga heimamanna. Meðan þú dvelur þar, njóttu þessa einstaka nútímablæs sem kraftmikil götulist gefur svæðinu og leyfðu þessum töfrandi og lítríku veggjamyndum að veita þér innblástur.
Uppgötvaðu hina ofurnútímalegu Tónlistarhöll , sem er rúmfræðileg níu hæða bygging sem hýsir framúrstefnulegt tónleikahús. Og ef þú hefur ekki fengið nóg af samtímalegri byggingalist, þá ættirðu ekki að missa af spírallagaðri skemmtiferðaskipastöðinni í Leixões-höfninni.
Nokkur verkefni sem tengjast Porto voru tilnefnd til New European Bauhaus (NEB) verðlaunanna árið 2021. Þverfaglega hönnunarstofan Theform, sem leggur áherslu á yfirgripsmikla sérsniðna upplifun, samsköpun og stafræna framleiðslu, komst á úrslitalista vegna Rísandi stjörnu-verðlaunanna.
Águeda heldur utan um hið áhugahvetjandi og inngildandi verkefni Regnhlífahiminn, sem felur í sér að koma fyrir litríkum regnhlífum meðfram sumum götum borgarinnar og opna þannig dyrnar fyrir hverjum og einum sem laðast að líflegu stemningu hennar. Skoðaðu þessa líflegu portúgölsku borg og þú munt upplifa hvernig litir hafa ekki eingöngu áhrif á fagurfræði borgarinnar, heldur líka á þínar tilfinningar.
Í fullkomnum anda New European Bauhaus (NEB), auðgar frumleg nálgun Águeda upplifun ferðamanna gegnum framtaksverkefni eins og símasmáforrit sem hjálpar þér að skipuleggja ferð þína um borgina og hjólastöðvar sem gera þér kleift að njóta þess að hjóla um litríkar götur borgarinnar.
En það er líka gott að tengjast miðaldarheimi Águeda. Skoðaðu Lamas do Vouga við Ponte Medival do Rio Marnel brúna, fallega brú sem byggð var yfir Marnel ána árið 1200, og leyfðu þér að njóta afslappandi lautarferðar við árbakkana. Listahátíðin AgitÁgueda er önnur vinsæl afþreying sem styrkir mjög hið menningarlega landslag borgarinnar. Hún laðar ýmsa tónlistarmenn að og stuðlar að borgarlist með því að framkvæma ýmsar listinnsetningar í borginni og á byggingum hennar.
Í Aveiro, ekki langt frá borginni, er hægt að sigla um síkin á hefðbundum moliceiro-trébáti og heimsækja leiði Joana prinsessu, lítríkt kennileiti úr marmara og í barokkstíl.
Badajoz, falinn gimsteinn í spænska héraðinu Extremadura, fylgir stefnu New European Bauhaus (NEB) gegnum sínar stöðugu fjárfestingar til að endurbyggja og endurlífga fyrrum iðnaðarsvæði. Sem dæmi má nefna að staðarverkefnið LaFábrika detodalavida hlaut New European Bauhaus verðlaun í flokknum „Endurnýjuð þétt- og dreifbýli“ fyrir sína sjálfbæru nálgun og áherslu á aðgengileika.
Badajoz býður gestum sínum upp á aðlaðandi borgarmynd og náttúrulegt landslag. Taktu inn ótrúlega liti borgarinnar með því að ganga um mögnuð torg hennar og skoða vel varðveittu sögulegu byggingarnar. Röltu kringum Plaza de San Francisco-torgið, sestu á bekk handskreyttan með majolica-flísum, gakktu svo alla leiðina að Puerta de Palmas-hliðinu og til baka til Renaissance, með því að fara yfir Puente de Palmas-brúna við ána Guadiana.
Vertu viss um að missa ekki af hinni tignarlegu listasmíð, Plaza Alta-torginu, ferhyrndu torgi umkringt bogahlíðum, skreyttum með hefðbundnum, litríkum múdejarmynstrum.
Lifandi og tímalausi andi höfuðborgar Spánar mun hrífa hvern þann sem heimsækir borgina. Madrid, sem táknmynd um nútímahugsun sem á rætur í langri sögu, þrífst á endurnýjun borgarauðkenna. Eitt gott dæmi er Caixa-vettvangurinn í Madrid, fyrrum orkuver sem nú hýsir spennandi og gagnvirkar sýningar um samtímalist.
Borgarráð Madrid hefur nýlega samþykkt að ganga til liðs við EIT Climate-KIC og taka þátt í áætluninni „Sýnidæmi um sjálfbærar og heilbrigðar borgir“, sem gerir Madrid að einni af þessum borgum sem stefna á minnkun kolefnis um 65% fyrir árið 2030.
Ekki langt frá rauðri byggingunni á líflega Plaza Mayor-torginu í íbúahverfinu Carabanchel, er hægt að finna hrífandi byggingalist sem leikur sér með liti og form. Meðan ein 18 íbúða bygging lítur út eins einn litríkur risakubbur úr pixlum, er önnur sem minnir á Tetris. Verkefni um opinbert húsnæði í Carabanchel sýnir enn djarfari notkun á litum og er það alveg í anda gildaNew European Bauhaus (NEB). Arkitektarnir máluðu einfaldar almennar íbúðaeiningar með mismunandi skærum litum, með það í huga að litir geti haft jákvæð áhrif á hugarástand okkar. Þú getur ekki annað en hrífst af listrænum, gáskafullum hugum spænskra arkitekta og upplifað kjarna New European Bauhaus-hugmyndafræðinnar.
Fyrir aðdáendur grænna borgarsvæða, má benda á Sorolla-safnið, þar sem hægt er að njóta bæði lifandi listaverka Joaquín Sorolla og kyrrðar í görðum safnsins. Fáðu þér göngutúr um iðandi Madrid Río-garðinn, sem er fullur af sögulegum byggingum, tómstunda- og menningarlegri afþreyingu, allt í samhljómi við líffræðilegan fjölbreytileika staðarins. Og ef þú ert sjálf(ur) listamaður, notaðu þá tækifærið til að heimsækja óhagnaðardrifnu samtökin Concomitentes, sem hafa stuðlað að sköpun og miðlun listaverka síðan 2018.
Fyllilega í anda New European Bauhaus (NEB), er hin spænska strandarborg Barcelona rík af sjálfbærum umbreytingum borgarauðkenna. Barcelona hlaut fjölda verðlauna fyrir sín verkefni á New European Bauhaus verðlaunaafhendingunni árið 2021, og ber þannig kyndilinn fyrir nýrri bylgju sjálfbærrar byggingalistar. Eitt frábært verkefni er Þak Xfire: „Fljótandi“ villigarðar, sem byggja á byggingalistarlegri endurnýjun og samhljómi við umhverfið.
Barcelona er einnig vinningshafi Evrópsku verðlaunanna árið 2022 fyrir samtímabyggingalist - Mies van der Rohe-verðlaunin: La Borda – samvinnuhúsnæði eftir Lacol. Verkefnið er tilkomið vegna breytinga í pólitík og þéttbýli og er grundvallað af samfélagslegum og efnahagslegum sjálfbærum kostum.
Lifandi andi borgarinnar og hugmyndin um aðgengi fyrir alla, endurspeglast fyllilega í röðum af áhrifaríkum byggingum sem án hiks fagna litum og aðgengileika. Hlýlegi andi Güell-garðsins og litir hans munu hrífa þig þegar þú gefur því gaum hvernig verk Gaudi renna saman bæði við náttúru og þéttbýlismynd borgarinnar.
Barcelona hefur einnig sýnt fram á nútímahugsun með fjölda orkusparandi bygginga. Ein af þeim, svo ekki verður um villst, er Torre Glòries, stærsti skýjakljúfur borgarinnar, sem skiptir litum eftir því sem líður á daginn og sólin endurspeglast á yfirborðinu.
Cork, önnur stærsta borgin á Írlandi, hefur blómstrað síðustu árin. Eftir nokkur verkefni sem snérust um sjálfbærni, aðgengileika og þróun þéttbýlis, blómstrar Cork nú á grunni gilda New European Bauhaus. Þökk sé fordæmalausri umhyggju borgarinnar fyrir velferð fólks og umhverfisins, hefur hún hlotið fjölda verðlauna fyrir verkefni eins og Cavanagh-brú, og hið nútímalega viðarklædda Glucksman-listagallerí.
Skoðaðu sögulega hlið borgarinnar og kíktu á hina áhrifaríku gotnesku Sankti Fin Barre-dómkirkju, auðkenni sem hefur staðið í dásamlegu grænu landslagi síðan á 12. öld. Eða kíktu á nágrannabæinn Kinsale, merkisstað sem hefur verið lýst sem sá litríkasta bæ Írlands, og láttu það lýsa upp daginn þinn. Og ef þetta skyldi ekki vera nóg, þá geturðu keyrt til Cobh sem er í 25 mínútna fjarlægð suðaustur af Cork og gengið að Sankti Colman-dómkirkjunni sem umkringd er litríkum húsum og iðandi götum.