Velkomin í eina fullvalda stórhertogadæmi heims! Lúxemborg er heillandi blanda af hinu fornu og nútímalega, staðbundna og alþjóðlega, einfaldleika og munaði. Röltu um gamla bæinn, í þröngum, hlykkjóttum húsasundum. Á þessu svæði er frábært að njóta stórbrotins útsýnis yfir sögulegar byggingar og steinbrýr borgarinnar yfir ána og fyrrum virki upprunalegra borgarmúra Lúxemborgar. Lúxemborg státar af frábæru almenningssamgöngukerfi með ýmsum nýjungum fyrir fólk með fötlun, sem hjálpaði henni að verða í fyrsta sæti í Access City Reward fyrir árið 2022. Lúxemborg gaf út borgarappið sitt árið 2020 sem veitir ýmsar upplýsingar um þjónustu borgarinnar, svo sem strætótíma, bílastæði og framboð á almenningshjólum auk þess að gera notendum kleift að eiga samskipti við embættismenn. Notaðu það til að komast að „fljótandi“ hjólastígnum sem hangir undir hinni frægu Pont Adolphe brú.
Við mælum með að þú stoppir í Leuven á DiscoverEU ferðalagi þínu og hér er ástæðan! Á meðan þú ert í þessari belgísku borg getur þú rölt um hin litlu en glæsilegu beguinages, sem er röð húsasunda, húsagarða og garða með tugum húsa og klaustra. Great Beguinage hefur verið skráð á heimsminjaskrá UNESCO og það er ókeypis að skoða, svo hvers vegna ekki að fara? Það er meira að sjá í Leuven og til að undirbúa ferðina þína best skaltu fara í sýndarferð um borgina. Sem snjallborg stefnir Leuven einnig að því að nýta nýsköpun sem best til að bæta lífsgæði íbúa sinna. Þessi belgíska borg var útnefnd Nýsköpunarhöfuðborg Evrópu árið 2020. Hún fékk einnig sérstaka viðurkenningu fyrir að bæta aðgengi fatlaðra, meðal annars með stafrænum lausnum, árið 2022. Leuven stundar hvetjandi stjórnarhætti þar sem íbúar, fyrirtæki, samtök og þekkingarstofnanir hjálpa til við að móta framtíðina.
Velkomin í Roffa *! Rotterdam býður upp á margar frábærar menningarupplifanir sem gera borgina að skyldustoppi á DiscoverEU ferðalagi þínu! Þessi hollenska borg státar af mörgum skínandi dæmum um nútímalegan, nýstárlegan arkitektúr, þar á meðal afar óvenjulegum húsum sem kallast de Kubuswoningen (kubbahúsin). Á meðan þú ert í Rotterdam skaltu smakka kapsalon - þessi hitaeiningaríka og kjötmikla blanda, sem er fáanleg í kebabbúðum, er upprunnin í Rotterdam. Haltu áfram að uppgötva borgina á reiðhjóli! Í Rotterdam er frábært að hjóla og í boði eru mörg gagnleg öpp sem eru hönnuð til að hjálpa gestum meðan á dvöl þeirra í borginni stendur. Rotterdam er, að mörgu leyti, stafræn borg. Hún er að vinna að netöryggi til að vera sem best undirbúin fyrir hugsanlegar netárásir. Borgin varð einnig í 2. sæti í Access City Award árið 2017 fyrir vinnu sína til að bæta aðgengi.
Dortmund er fræg fyrir fótboltaliðið sitt, en ef þú þekkir ekki borgina af öðru skaltu koma við og uppgötva þessa frábæru borg! Á meðan þú ert í Dortmund skaltu gæta þess að sjá Wasserschloss Haus Rodenberg, framúrskarandi dæmi um endurreisnararkitektúr, með útsýni yfir vatn í miðju garðs. Eftir að þú hefur rölt um líflegar götur miðbæjarins skaltu taka þér pásu í Westfalenpark til að leika þér og dást að þeim 3.000 rósaafbrigðum sem þar er að finna. Vissir þú að Dortmund safnar einnig nýsköpunar- og stafvæðingarverðlaunum? Borgin var útnefnd "Stafrænasta borg Þýskalands" árið 2018. Dortmund komst einnig í lokastig í vali á Nýsköpunarhöfuðborg Evrópu árið 2019, vann „Stadt.Land.Digital“ keppnina 2019 og var gestgjafi Digital Summit sama ár.
Þýska borgin Hamborg býður upp á margt að gera og skoða – sem gerir hana að fullkomnu stoppi á DiscoverEU ferð þinni. Framúrskarandi arkitektúr, árbakkar Elbe, umlykjandi garðlendi og fjöldi einstakra safna gera þessa borg að spennandi stað til að eyða degi í að skoða. Hamborg hefur orð á sér fyrir að vera nýstárlegasta snjallborg Þýskalands og varð í efsta sæti hjá bæði Bitkom's & Haselhorst Associates fyrir árið 2020. Í Hamborg er verið að prófa möguleika á sjálfkeyrandi akstri í Evrópu. Þannig getur þú hoppað upp í sjálfkeyrandi smárútu og fengið far um borgina án ökumanns! Haltu áfram að kanna framfarir í borgar- og stafrænni nýsköpun og heimsæktu Hammerbrooklyn.DigitalCampus.
Árósar er næststærsta borg Danmerkur, en ekki sú næstbesta! Farðu niður að hafnarböðunum og njóttu þess sem þau hafa upp á að bjóða. Syntu í hafnarböðunum eða farðu í grænan kajak - þeir eru ókeypis, svo framarlega sem þú kemur með rusl með þér úr ferðinni. Síðan getur þú skoðað suma af áhugaverðustu stöðum borgarinnar, eins og hina líflegu Dokk 1 menningarmiðstöð eða bygginguna frægu sem gengur undir heitinu Ísjakinn í hinu nýja Ø-hverfi Árósa. Árósar nota nýsköpun til að verða snjöll (eða snjallari) borg. Hún er staðsetning snjallborgarverkefnis framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins ,READY, sem sýnir fram á hvernig hægt er að draga úr orkuþörf með því að endurbæta byggingar, samþætta orkukerfi, upplýsingatækni, hreyfanleika og samgöngur.
Ef þetta er fyrsta skiptið þitt í Kaupmannahöfn skaltu smella mynd af litlu hafmeyjunni eða heimsækja markað til að smakka Smørrebrød. En ef þú hefur komið áður eða vilt fara ótroðnar slóðir skaltu fara í „Know your ‘bro'' sem er ókeypis göngutúr um borgina með stafrænni leiðsögn. Þannig getur þú kynnst hinni sönnu Kaupmannahöfn. Hvort sem þú vilt skoða hið unga, fjölmenningarlega og iðandi Nørrebro, hið óslípaða, fjölbreytta og svala Vesterbro, eða hið þéttbýla Amager við sjávarbakkann, muntu læra um sögu, menningu og daglegt líf í þessum 3 hverfum sem voru áður verkamannahverfi. Kaupmannahöfn notar líka stafræna tækni til að verða sjálfbærari. Hún setur græna staðla fyrir snjallborgir um allan heim og verður fyrsta kolefnishlutlausa höfuðborgin árið 2025.
Næststærsta borg Svíþjóðar, stofnuð árið 1621 af Gústaf II. Adolf konungi sem miðstöð atvinnufiskveiða, er einstök blanda af borgarlífi og náttúrunni sem er skammt frá. Það er mjög auðvelt að ferðast um borgina, ekki síst vegna fjölbreytts úrvals rafmagnsrúta sem Gautaborg býður upp á! Borgin var valin evrópsk höfuðborg snjallferðaþjónustu árið 2020 og var í fyrsta sæti í alþjóðlegum sjálfbærnivísi heimsborga árið 2017. Farðu í göngutúr meðfram síkjunum og uppgötvaðu Feskekôka, sögulega fiskmarkaðinn með óvenjulegri kirkjulögun sinni. Síðan skaltu fá þér „fika“ í Haga! Þetta skemmtilega hverfi, sem var upphaflega skipulagt sem fyrsta úthverfi Gautaborgar á 17. öld, er nú ómissandi svæði í miðbænum, með steinlögðum götum sínum og vel varðveittum timburhúsum frá 19. öld. Hefur þú gaman að spennu? Þá verður þú að skella þér í Liseberg skemmtigarðinn, sem býður upp á ótrúlega rússíbana og tónlistaratriði!
Þrátt fyrir að vera ekki mjög stór er Ósló fullkomin blanda af lifandi borgarlífi og náttúru, sem og gömlum og nýjum arkitektúr. Borgin er að stafvæða ýmsa opinbera þjónustu til að verða sjálfbærari og hefur komið upp kerfi snjalllýsinga til að draga úr losun. Þú getur byrjað ferð þína á því að dýfa þér í sögu borgarinnar með því að heimsækja Akershus-virkið, sem nær aftur til 14. aldar, og hin ýmsu söfn sem þar er að finna. Aðeins steinsnar í burtu er Bjørvika, fallegt hverfi með frábærum dæmum um nútímalegan skandinavískan arkitektúr, þar á meðal hið heimsfræga óperuhús. Er svengd farin að segja til sín? Þá skaltu hoppa upp í strætó til að fara í Mathallen, mathöllina þar sem þú getur gætt þér á norskri matargerð! Á kvöldin skaltu ekki gleyma að skoða bakka Akerselva-árinnar í Grünerløkka-hverfinu til að njóta hins einstaka næturlífs Ósló. Og ef þú ert ekki viss um að þú komist þangað í tæka tíð skaltu ekki hafa áhyggjur: þökk sé notkun hlutanetsins og gagnasöfnunar er einfalt að taka strætó í Ósló, sem bjóða meðal annars upp á staðsetningarrakningu, miðasölu og upplýsingar fyrir farþega.