Dresden, sem þýsk borg í stöðugri þróun, er góð fyrirmynd um kraftmikla endurfæðingu og þróun. Borgin fléttir saman forna fegurð og samtímaþróun þéttbýlis, með endurbyggingu nokkurra sögulegra bygginga sem fullkomlega eru felldar inn í einstakt nútímalegt og kraftmikið landslag.
Fyrrum orkuverið Kraftwerk Mitte, er nú menningarlegur og listrænn suðupottur og Menningarhöllin í Dresden, byggð árið 1969 og tvisvar endurbyggð síðustu ár, eru aðeins tvö dæmi um hvað gerir Dresden að fullkominni borg þar sem hægt er að upplifa stefnu New European Bauhaus (NEB).
Meðan þú dvelur þar og tekur inn sögulega endurfæðingu borgarinnar, vertu viss um að missa ekki af nútímalegri vendingu Dresden. Uppgötvaðu hina ótrúlegu hönnun UFA-kvikmyndahallarinnar í Prager-stræti, eða hvelfingu Yenidze-byggingarinnar, fyrrum sígarettuverksmiðju.
Heimsæktu Ostrava og uppgötvaðu hina heillandi blöndu þéttbýlishönnunar í mærísk-slesísku héruðum Tékklands. Söguleg í hjarta sínu, en samt full af sovésku og síðiðnaðarlegu landslagi, tekur Ostrava vel á móti nútímalegum og byltingakenndum hugsuðum með sínu rafmagnaða og kraftmikla andrúmslofti.
Í fullu samræmi við gildi New European Bauhaus (NEB), umvefur nútímahugsun náttúru og sjálfbærni. Þar má finna virka endurbyggingu almannagarða og gamalla iðnaðarbygginga, gerð hjólreiðastíga og sterka skuldbindingu um að minnka kolefnisspor fyrir árið 2030. Ostrava þrífst einnig á aðgengileika og samfélagslegri þróun. Nýlega afhjúpuð hönnun á hæsta skýjakljúfi Tékklands sýnir hvernig áætlað er að hafa skrifstofur, íbúðaeiningar, hótel og margt fleira í byggingunni.
Meðan þú dvelur þarna, ekki missa af tækifærinu til að fræðast um iðnaðarlegar rætur borgarinnar með því að skoða Dolní Vítkovice, sem er fyrrum iðnaðarsvæði sem hefur verið breytt í útisafn og vettvang fyrir listir.
Brno, borg sem er þátttakandi í sjálfbærri borgarskipulagningu og -hönnun, er flaggskip New European Bauhaus (NEB) og blandar á tignarlegan hátt forna sögulega tilfinningu og nútímalegum byggingum og uppsetningum. Í borginni snýst allt um að endurskipuleggja og endurbyggja fyrrum iðnaðarsvæði, líkt og Brugghúsið: Social Reactor-verkefni, þar sem nú er menningarmiðstöð iðandi af listrænni og samfélagslegri sköpun.
Notaðu tækifærið til að heimsækja Sýningamiðstöð Brno, þar sem City Cell frumgerðinni hefur verið komið fyrir, en það er tréverksrými þar sem safnað er saman gögnum um gróðurræktun í þéttbýli og stjórnun regnsvatns.
Brno er lykilborg þar sem grunnur hins upprunalega Bauhaus-skólans liggur. Það eru engar betri sannanir fyrir því en Tugendhat Villa, nútímaleg flaggskipsbygging sem hönnuð var af einum af brautryðjendum nútímabyggingalistar, þýsk-ameríska arkitektinum Ludwig Mies van der Rohe og er nú listuð á heimsminjastaðaskrá UNESCO.
Bratislava er pólitískt, menningarlegt og efnahagslegt hjarta Slóvakíu. Með því að flétta saman nútímalegum byggingum við víðamikið náttúrulegt landslag, og taka inn gildi New European Bauhaus (NEB) að fullu, býður borgin upp á sjónarspil undir berum himni á hverju augnabliki.
Borgin þrífst á sjálfbærri nútímavæðingu, list og menntun. Eitt stórkostlegt verk af nútímalegri, sovéskri byggingalist er Most SNP (Brú hinnar slóvakísku þjóðaruppreisnar). Hátt fyrir ofan má sjá pall sem líkist fljúgandi furðuhlut og veitingastað sem býður upp á loftmynd af borginni og ánni Dóná.
Farðu í göngutúr að Námestie Slobody, Friðartorgi borgarinnar, þar sem tignarlegi stálgerði Družba-brunnurinn trónir í miðjunni umkringdur grænum svæðum. Ekki gleyma að stoppa á leiðinni við ótrúlega útvarpsbyggingu Slóvakíu, öfuga pýramidabyggingu sem skilur þig eftir orðlausa(n). Og ef þú hefur gaman að trébyggingalist, skaltu ekki missa af Korzo Zálesie með sínu friðsæla, náttúrulega andrúmslofti, en það er líka innan nýja evrópska Bauhaus áttavitans.
Viltu finna meira? Sögur á bak við nútímalegar framhliðar Bratislava eru vel skráðar á Instagram-síðunni @modernistbratislava
Sjötta stærsta borg Ungverjalands er frábært dæmi um gildi og markmið New European Bauhaus (NEB). Győr er líflegur staður sem þrífst á framförum og þróun. Síðan á áttunda áratugnum hefur borgin gengist undir röð af umbreytingum til að öðlast sjálfbæra borgarmynd í jafnvægi. Borgin hefur ráðist í framtíðarmiðaðar fjárfestingar til að verða að snjallborg og á sama tíma hefur hún endurnýjað torg, byggingar og mannvirki og innleitt gjaldlausa þjónustu borgarstrætisvagna.
Yfirbragð Győr mun láta þig finnast eins og þú hafir ferðast aftur í tímann – vitnisburður um samhljóm milli fortíðar og framtíðar. Ef þú röltir um á milli hinna mörgu miðbæjarbygginga borgarinnar, þá kemstu að því að þær eru vel varðveitt mannvirki, eins og Sankti Ignatius Benedictine kirkjan með sínum stórbrotnu, nákvæmu barokkinnréttingum.
Það sem meira er, hefur Széchenyi István háskólinn í Győr nýlega hleypt hönnunarháskólaþorp af stokkunum, með það að markmiði að verða miðstöð skapandi iðnaðar á svæðinu og nýsköpunarstöð með áherslu á víðsýni, sveigjanleika og lausnarmiðaða hugsun. Á göngu þinni meðfram bökkum Dónár, skaltu ekki missa af sannkölluðu meistaraverki nútímalegrar byggingalistar: Búningaklefa Rudolf Pilt og hlaðborð.
Vaduz, heimkynni prinsins í Liechtenstein og einstaklega framsækinn staður, býður upp á alla kosti framtíðarborgar. Þökk sé innleiðingu framtaksverkefnis um bíllausan miðbæ, þá geturðu ráfað frjálslega um fögur strætin og andað að þér sögulegu andrúmslofti staðarins.
Á hinum endanum, en þó fullkomlega innfellt í grænu, náttúrulegu landslagi Rínardalsins, má finna stórkostlegt verk nútímabyggingalistar í Listasafni Liechtenstein. Þessi nútímabygging, sem hýsir eitt af elstu einkalistasöfnum Evrópu, hefur verið tilnefnd til Evrópusambandsverðlaunanna fyrir nútímabyggingalist – Mies van der Rohe verðlaunanna. Þessi svarti kassi gerður úr litaðri steypu, umkringdur lækjarsteinum og löngum röðum af glugglum mun hafa dáleiðandi áhrif á þig.
Í Vaduz er líka að finna Orkuvirknibygginguna, gler- og stálbyggingu sem grípur augað og framleiðir meiri orku en hún nýtir vegna þess að hún nýtir eingöngu jarðhita og sólarorku. Ef hugmyndin um að fara yfir landamæri heillar þig, þá geturðu kíkt á síðustu trébrúna sem enn stendur yfir Rín,– Alte Rheinbrücke, –en hún er 135 metra löng og tengir saman Liechtenstein og Sviss.