Skip to main content
Submitted by Roxanne VAN DE… on
Draw lines
Yes
Color
#878687
Cities/Points
Name
Novo Mesto
Country
Slovenia
Population
36000
Why visit?

Það er kominn tími til að taka lestina og verða grænn! Komdu við í Novo Mesto í Slóveníu. Tengsl hennar við náttúruna hafa haft mikil áhrif á sögu borgarinnar. Novo Mesto býður upp á ótrúlegar uppgötvanir, allt frá hinum friðsæla Otočec-kastala á miðri eyju í ánni Krka til hæðanna í Trška Gora, með vínekrum og kotum. Ekki missa af Breg og njóttu þess sem fyrir augun ber í þessum sögulegu götum. Ef þú þreytist á að ganga skaltu hoppa upp í rafmagnsrútu sem nýlega var hleypt af stokkunum í borginni. Novo Mesto stefnir að því að verða snjöll borg eigi síðar en árið 2030. Borgin vinnur með Telekom Slovenije og SAP Slovenija að því að þróa og setja upp snjallborgarinnviði um alla borg. 

Image
Novo Mesto
Coordinates
45.8036171,15.1521761
Tags with icon
Sustainable technology
Intelligent Cities Challenge
Smart city
Name
Vín
Country
Austria
Population
1767000
Why visit?

Willkommen in Wien!* Með sínar gylltu hallir og fræga íbúa (þar sem meðal annars má nefna tónlistarmeistarann Mozart, listmálarann Klimt og Hollywood-stjörnuna Christoph Waltz) er höfuðborg Austurríkis ómissandi heimsókn fyrir alla ferðamenn sem ferðast um Evrópu. Vín komst á lokastig í vali á Nýsköpunarhöfuðborg Evrópu árið 2020 og stefnir að því að verða snjallborg til að bæta lífsgæði íbúa sinna. Til að fá sem mest út úr ferð þinni til Vínar skaltu hlaða niður Ivie appinu og spyrja spjallveruna í appinu allra spurninga þinna. Þú getur einnig notið skoðunarferða þökk sé Vínarpassanum sem veitir þér ókeypis aðgang að meira en 60 söfnum og áhugaverðum stöðum í Vín. Og ef þú elskar Klimt skaltu heimsækja Wien Museum til að dást stærsta safni málverka hans. 

Image
Vín
Coordinates
48.2205564,16.0929904
Tags with icon
City app
European Capital of Innovation
City app
Name
Brno
Country
Croatia
Population
380000
Why visit?

Næsti áfangastaður þinn ber gælunafnið „Litla Vín“. Getur þú giskað á hvar hún er? Brno, sem einnig er kallað „falið hjarta Evrópu“, mun heilla þig með nýendurreisnararkitektúr sínum, kastala sem er eins og úr sögubók og fallega Brno vatninu. Á meðan þú ert í þessari rómantísku tékknesku borg skaltu fara efst í gamla ráðhúsið og njóta stórkostlegs útsýnis þér að kostnaðarlausu. Taktu þér hlé og fáðu þér kaffi á hinu breiða Náměstí Svobody torgi, með pastellituðum byggingum frá nýendurreisnartímanum. Borgin hleypti af stokkunum snjallborgarhugmynd sinni árið 2015 til að kynna snjallt samgöngunet, skilvirkari leiðir til að hita og lýsa upp byggingar og auðvelda stafræna þátttöku borgara og stjórnvalda. 

Image
Brno
Coordinates
49.2021611,16.5079211
Tags with icon
Smart city
Intelligent Cities Challenge
City app
Name
Košice
Country
Slovakia
Population
239000
Why visit?

Ertu að leita að listrænum áfangastað? Bættu þá Kosice við DiscoverEU ferðaáætlunina þína! Košice, sem er staðsett í austurhluta Slóvakíu, var útnefnd Skapandi borg stafrænna lista af UNESCO og starfar sem alþjóðleg miðstöð fyrir fagfólk í stafrænum listum. Verið er að efla stöðu borgarinnar sem nýsköpunarmiðstöð fyrir stafrænar listir með ESB-fjármögnuðum verkefnum eins og Košice 2.0, sem miðar að því að styðja tilraunaverkefni sjálfbærra þéttbýlisþróunarverkefna í stafrænum og tæknilegum greinum. Á meðan þú ert í Košice skaltu ganga niður Hrnčiarska-götuna, sem einnig gengur undir heitinu „handverksgatan“. Þar heldur handverksfólk borgarinnar úti verslunum sem selja hunang, útsaum, bakaðar vörur, leirmuni og jafnvel jurtir sem ræktaðar eru á svæðinu á þessari skemmtilegu, steinlögðu götu, sem gerir hana að fullkomnum stað til að kaupa minjagripi.

Image
Kosice
Coordinates
48.6975566,21.0991104
Tags with icon
Startup hotspot
City app
Sustainable technology
Name
Debrecen
Country
Hungary
Population
202000
Why visit?

Óhætt er að segja að Debrecen leyni á sér! Hér eru nokkrar ástæður fyrir því að þú ættir að bæta þessari ungversku borg við DiscoverEU ferðina þína. Þessi næststærsta borg Ungverjalands stendur á norðursléttunni miklu og býður upp á mörg græn svæði. Nagyerdei-garðurinn er friðsæll griðastaður með skóglendi, landmótuðum stígum, listaverkum utandyra og hjólreiðastígum. Debrecen stefnir að því að innleiða að fullu snjallt orkustjórnunarkerfi til að draga úr losun um 80% fyrir árið 2050. Á meðan þú ert í borginni skaltu hafa augun opin fyrir QR-kóðum sem eru á við og dreif um borgina og veita uppfærðar ferðaþjónustuupplýsingar, nýttu þér ókeypis þráðlaust net víðs vegar í borginni og í sporvögnum og haltu tækjunum þínum hlöðnum með heimsókn í Orkusveppinn, sólarknúna hleðslustöð í miðbænum. 

Image
Debrecen
Coordinates
47.5310609,21.5200997
Tags with icon
Sustainable technology
Free public charging
Free public Wi-Fi
Name
Cluj-Napoca
Country
Romania
Population
323000
Why visit?

Cluj-Napoca er frábær staður til að heimsækja þökk sé fallegum torgum, földum götum, óvenjulegum kaffihúsum og líflegu næturlífi. Þessi rúmenska borg var útnefnd sem Ungmennahöfuðborg Evrópu árið 2015 og varð fyrsta austur-evrópska borgin til að komast á lokastig í vali á Nýsköpunarhöfuðborg Evrópu árið 2020. Borgin státar af neti 18 ókeypis WiFi heitreita sem er þægilegt hvort sem þú ert að leita að þýðingum til að eiga samskipti við heimamenn eða vilt rata í miðbænum. Á meðan þú ert í Cluj skaltu gefa þér smá tíma til að slaka á í hengirúmi í Central Park, heimsækja þjóðfræðigarðinn Romulus Vuia til að læra meira um sögu Transylvaníu og blanda geði við stúdenta í borginni á einum af líflegum börum Piezișă-götunnar. 

Image
Cluj-Napoca
Coordinates
46.7834818,23.5464729
Tags with icon
Free public Wi-Fi
European Capital of Innovation
City app