Skip to main content
Submitted by Lovepreet KAUR on
Draw lines
Yes
Color
#8e056c
Cities/Points
Name
Lissabon
Country
Portugal
Population
505000
Why visit?

Velkomin í eina af tengdustu höfuðborgum Evrópu! Lissabon er fræg fyrir fallegar hæðir og eitt af því sem þú verður að prófa er að fá far með einum 28 skærgulum sporvögnum borgarinnar. Ekki gleyma að gefa þér tíma til að rölta um Mouraria-hverfið og njóta götulistarinnar sem þar er að finna. Komdu við í bakaríi til að prófa dýrindis eggjarjómabúðing, stráður með kanil og púðursykri, sem kallast pastéis de nata. Síðdegis skaltu leggja leið þína upp að 11. aldar kastalanum Castelo de São Jorge til að fá besta útsýnið yfir borgina í rökkri. Þessi „borg ljóssins“ var útnefnd Græn höfuðborg Evrópu árið 2020. Að hluta til var það vegna snjallborgarstefnu Lissabon, sem er fólgin í orkunýtnum hverfum, snjöllu götulýsingarkerfi, hleðslustöðvum fyrir rafbíla og stafrænu almenningssamgöngukerfi, auk annarra nýsköpunarverkefna.

Image
Lissabon
Coordinates
38.7436883,-9.1952226
Tags with icon
Smart city
Sustainable technology
Startup hotspot
Name
Badajoz
Country
Spain
Population
150500
Why visit?

Hvers vegna að heimsækja borgina? Badajoz er eflaust ekki fyrsta spænska borgin sem þú munt heyra um, en hún hefur upp á margt að bjóða. Þannig að við mælum með að þú bætir henni við DiscoverEU ferðaáætlunina þína. Nálægðin við portúgölsku landamærin hefur ávallt einkennt Badajoz. Þessi spænska borg er auðug af merkri byggingarlist þökk sé fjölmenningarlegri arfleifð hennar. Ef þú röltir um sögulega hverfið muntu sjá arabíska múra, spennandi minnisvarða og fallegar götur og yfirbyggða innganga. Í La Alcazaba, hinu forna máríska borgarvirki, getur þú notið ótrúlegs útsýnis yfir borgina! Þessi söguleg borg hefur einsett sér að verða snjöll. Hún kefur komið á laggirnar nýstárlegri borgarþjónustu, þar á meðal snjallri úrgangsstjórnun og snjallri stjórnun vatnshringrásar.

Image
Badajoz
Coordinates
38.8794122,-7.0051887
Tags with icon
Smart city
Sustainable technology
Name
Madrid
Country
Spain
Population
3183000
Why visit?

Hvers vegna að heimsækja borgina? Madríd hefur upp á margt að bjóða fyrir gesti af öllu tagi, allt frá heimsfrægum söfnum til líflegs næturlífs. Á meðan þú ert í Madríd skaltu rölta að Plaza Mayor, byggingarlistarkennileiti sem var upphafspunktur nútímavæðingar Filippusar II. konungs í Madrid á 16. öld. Við hliðina á henni er einn fjölfarnasti hluti borgarinnar, Puerta del Sol almenningstorgið. Ef þú ert að leita að kyrrð er hið glæsilega Parque del Buen Retiro einnig í grenndinni þar sem upplagt er að rölta um og hvíla sig. Þegar þú ert í Madrid muntu geta notað ókeypis hleðslustöðvar fyrir farsíma í neðanjarðarlestinni og ókeypis þráðlaust net í öllum strætóum. Ef þú vilt njóta listar mælum við með að þú farir á Prado safnið og upplifir 360 gráðu sýndarveruleika. Þannig getur þú komist í meira návígi við listaverkin en nokkru sinni fyrr!

Image
Madrid
Coordinates
40.4381311,-3.8196194
Tags with icon
Free public Wi-Fi
Free public charging
Name
Bilbao
Country
Spain
Population
350000
Why visit?

Komdu við í einni af snjöllustu borgum heims: Bilbao! Þegar þú heimsækir borgina muntu geta tengst einum af 200 ókeypis WiFi heitreitum hennar. Upplifðu menningarhjarta hennar með heimsókn á Guggenheim safnið og Azkuna Center og finndu bestu „pintxos“ til að borða í bænum! Bilbao er líka ein af framúrstefnulegustu borgum Spánar. Hún hefur einsett sér að standa vörð um mannleg gildi með snjöllum borgarmarkmiðum. Árið 2018 gaf Bilbao út gildissáttmála sinn, sem setur fram markmið hennar um að berjast fyrir félagslegu réttlæti, jafnrétti kynjanna og fjölbreytileika og inngildingu. Árið 2013 fékk Bilbao einnig sérstaka viðurkenningu fyrir aðgengi þökk sé aðgerðum eins og sjálfstætt vottaðri aðgengilegri vefsíðu og myndfundarþjónustu fyrir táknmálsnotendur. 

Image
Bilbao
Coordinates
43.2633807,-2.9685839
Tags with icon
Free public Wi-Fi
Smart city
Name
Bordeaux
Country
France
Population
635780
Why visit?

Þótt margir komi til Bordeaux til að smakka vínið hefur þessi höfn tunglsins upp á svo miklu meira að bjóða! Í þessari borg í suðvesturhluta Frakklands getur þú gætt þér á frábærum mat, verslað eins og þig listir, upplifað skemmtilegt næturlíf og margt fleira. Á meðan þú ert í Bordeaux færðu aðgang að ókeypis þráðlausu neti, sem er í boði hvarvetna í miðborginni. Tengstu því og farðu í götulistarferð um Chartrons-hverfið með snjallsímanum þínum! Frá árinu 2017 hefur þessi franska borg nýtt internetið í þágu nýsköpunar, aukinnar sjálfbærni og til að bæta opinbera þjónustu sína, svo sem með snjöllum lausnum á sviði lýsingar, úrgangsstjórnunar og samgangna. Hún gaf til dæmis út snjallt umferðarforrit til að draga úr umferðarteppum, slysahættu og mengun.

Image
Bordeaux
Coordinates
44.8637733,-0.6210314
Tags with icon
Free public Wi-Fi
Digital public services
Name
Nantes
Country
France
Population
441000
Why visit?

Eins ótrúlegt og það kann að virðast getur þú séð fíl í Nantes! Þetta fræga dýr hefur orðið tákn borgarinnar. Farðu á „Machines de l'Île“ til að virða hann fyrir þér og fáðu þér göngutúr meðfram Loire til að heimsækja „Hangar à bananes“. Síðan skaltu fara grænu leiðina og heimsækja „Jardin des Plantes“ til að uppgötva óvænta skúlptúra og Exhibition gróðurhúsið. Haltu áfram inn í gamla bæinn og gakktu í gegnum hina töfrandi verslunarmiðstöð Passage Pommeraye. Þótt Nantes sé söguleg borg var hún útnefnd Nýsköpunarhöfuðborg Evrópu árið 2019. Hún leggur áherslu á stafvæðingu fyrirtækja. Þessi „borg hertoganna“ stuðlar nú að nýsköpun um alla borg. Þegar þú ert í Nantes skaltu sækja „Nantes dans ma poche“ appið til að fá allar gagnlegar upplýsingar um borgina. Borgin var einnig í öðru sæti í Access City Award árið 2013 fyrir áherslu sína á að gera Nantes aðgengilega fyrir alla og margvíslegar aðgerðir sínar til að auka vitund um aðgengi í daglegu lífi. 

Image
Nantes
Coordinates
47.238328,-1.630374
Tags with icon
European Capital of Innovation
City app
Startup hotspot
Name
Lúxemborg
Country
Luxembourg
Population
115000
Why visit?

Velkomin í eina fullvalda stórhertogadæmi heims! Lúxemborg er heillandi blanda af hinu fornu og nútímalega, staðbundna og alþjóðlega, einfaldleika og munaði. Röltu um gamla bæinn, í þröngum, hlykkjóttum húsasundum. Á þessu svæði er frábært að njóta stórbrotins útsýnis yfir sögulegar byggingar og steinbrýr borgarinnar yfir ána og fyrrum virki upprunalegra borgarmúra Lúxemborgar. Lúxemborg státar af frábæru almenningssamgöngukerfi með ýmsum nýjungum fyrir fólk með fötlun, sem hjálpaði henni að verða í fyrsta sæti í Access City Reward fyrir árið 2022. Lúxemborg gaf út borgarappið sitt árið 2020 sem veitir ýmsar upplýsingar um þjónustu borgarinnar, svo sem strætótíma, bílastæði og framboð á almenningshjólum auk þess að gera notendum kleift að eiga samskipti við embættismenn. Notaðu það til að komast að „fljótandi“ hjólastígnum sem hangir undir hinni frægu Pont Adolphe brú.

Image
Lúxemborg
Coordinates
49.6076553,6.1007649
Tags with icon
Digital public services
City app
Access City Award Winner