Skip to main content
Submitted by Elisavet KOZAKOU on
Draw lines
Yes
Color
#8b0000
Cities/Points
Name
Mílanó
Country
Italy
Population
1371498
Why visit?

Með sínum framsækna anda og borgarbrag, er Mílanó ekki eingöngu borg sem getur státað af raunverulegri sjálfbærri þéttbýlissköpun, heldur getur líka endurspeglað heils hugar gildi New European Bauhaus (NEB).

Mílanó hýsir hinn tilkomumikla Lóðrétta skóg , fyrstu bygginguna í heiminum sem fyllilega fellir saman í eina heild vistarverur, húsnæði og náttúru, og hjálpar þannig við baráttuna gegn hækkun hitastigs.

Mílanó, borg með náttúrulegan drifkraft til að vinna að aðgengileika og þróun, stuðlar að menningarlegri framtakssemi og verkefnum gegnum þau rými sem tileinkuð eru sköpun og list. Ekki missa af tækifærinu til að heimsækja Pirelli HangarBicocca, fyrrum iðnaðarsvæði sem nú hýsir stórglæsilegar samtímalistasýningar. Notaðu líka tækifærið til að heimsækja Mare Culturale Urbano, menningarlega miðstöð sem snýst um sameiginlega listsköpun, hugmyndir og matardeilingu.

Fáðu þér göngutúr gegnum Porto di Mare Eco-hverfið, svæði í borginni sem hefur undirgengist verulega endurnýjun þéttbýlis, sem leiddi til þess að borgin hlaut New European Bauhaus-verðlaunin árið 2021 í flokknum Rísandi stjörnur. Skoðaðu þau áhrif sem Piazze Aperte-áætlunin hefur í gegnum borgina, þar sem fyrrum götum og bílastæðum hefur verið umbreytt í ný almenningssvæði, eins og göngusvæði, sprettihjólreiðastíga og samfélagsleg rými.                                                                                    

Matarmarkaðir Mílanó eru líka heimsóknar virði, ekki bara til að njóta ítalskrar framleiðslu og eldamennsku, heldur vegna þess að þeir stuðla að sjálfbærni með umskiptum yfir í hringrásarmatarkerfi.

Image
Mílanó
Coordinates
45.4628328,9.1076928
Tags with icon
Bicycle-friendly
Sustainable initiatives
Urban renewal
Name
Salzburg
Country
Austria
Population
157245
Why visit?

Salzburg, austurrísk borg sem horfir yfir til Þýskalands og Austur-Alpa, þrífst á list, menningu og sögu og er stöðugt að þróa sín sjálfbæru verkefni í samræmi við New European Bauhaus (NEB). Sögulegt hverfi Salzburgar er skilgreint sem svæði sem hefur ómetanlegt gildi fyrir mannkynið og hefur verið á heimsminjastaðaskrá UNESCO síðan 1997.

Uppgötvaðu kennileiti borgarinnar og taktu flugið gegnum barokktímabilið. Dreifaltigkeitskirche (Heilaga þrenningarkirkjan), sem umkringd er litríkum görðum, er meistaraverk í barokkstíl eftir Fischer von Erlach og er vel þess virði að heimsækja. Hagenauer-húsið er staðurinn þar sem listræn sál Salzburgar virkilega sprettur fram; það er fæðingarstaður Wolfang Amadeus Mozart og er eitt mest heimsótta safnð í Austurríki. Salzburg, sem þrífst á listrænum viðburðum sem samtvinnast fullkomlega við borgarmyndina, hýsir einnig Landestheater sem heldur hundruð viðburða á hverri árstíð.

Alþjóðlega málstofan í Salzburg er óhagnaðardrifin stofnun sem skorar á leiðtoga að móta betri heim. Salzburg er einnig vinningshafi Aðgengisborgar-verðlauna (2012) og nokkrar byggingar hafa vakið athygli Evrópusambands-verðlaunanna í samtímabyggingalistarflokknum – Mies van Der Rohe verðlaunanna, þar á meðal Blómamarkaðurinn (eftir Wimmer Zaic arkítekt), Frístundaheimili sveitarfélaga (eftir maria flockner og hermann schnoll arkítekta) og Panzerhalle.

Image
Salzburg
Coordinates
47.8028453,12.9846724
Tags with icon
Rediscover the history
UNESCO World Heritage List
Sustainable initiatives
Bicycle-friendly
Name
NEB Hetjuborg: Ljubljana
Country
Slovenia
Population
295504
Why visit?

Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, er trú grundvallaratriðum New European Bauhaus (NEB) um sjálfbærni og aðgengileika í borgarþróun og er á fullu að vinna með verkefni sem varða enduruppbyggingu og endurnýjun í þéttbýli. Sláandi dæmi um verkefni, er framleiðslurýmið KRATER, sem leitt er af samfélaginu sjálfu, en þar eru fjölbreyttar starfsstöðvar allt frá pappírsgerðarvinnustofu til griðastaðar fyrir yfirgefnar pottaplöntur. Miðstöðin, sem staðsett er nálægt miðbænum, spratt fram úr gíglíku byggingarsvæði til að bjóða vistfélagslegum sérfræðingum rými fyrir vinnustofur sínar og hlúa að framleiðslu umhverfisvænna efna og að starfsháttum og bandalögum.

Í hjarta borgarinnar, á þríhyrnda Prešeren-torginu, lifnar andi Ljubljana með viðburðum og listrænum sýningum. Stærsti og fallegasti garður Ljubljana, Tivoli-garðurinn, er grænt borgarrými í miklu uppáhaldi. Rýmið nær yfir 5 km2 og innan þess er Jakopič-göngusvæðið, sem er frægt útivistarsvæði fyrir ljósmyndasýningar og er opið árið um kring.

Auk annarra jákvæðra framtaksverkefna sem veitti Ljubljana brautargengi til að landa Aðgengisborg-verðlaununum 2023, þá hefur borgin einnig skuldbundið sig til að verja og fjölga grænum þéttbýlissvæðum og hefur búið til býflugnastíg til að stuðla að endurvillingu.

Skoðaðu Blámælinn sem samsamar sig við himinblámann hverju sinni og mælir á sama tíma loftgæðin. Notaðu síðan tækifærið til að skoða einn af furðulegustu og áhugaverðustu stöðum borgarinnar, Metelkova Mesto, öðruvísi menningarmiðstöð þar sem veggir eru þaktir litríkum veggjamyndum og veggjakroti.

Image
Ljubljana
Coordinates
46.0662151,14.4620596
Tags with icon
Access City Award winner
Rich in green spaces
NEB Projects
Name
Celje
Country
Slovenia
Population
37872
Why visit?

Fjórða stærsta borgin í Slóveníu, Celje, er einn af landsins Grænu áfangastöðum, sem viðurkenndir eru fyrir sjálfbærni. Í fullu samræmi við markmið New European Bauhaus (NEB), þá hýsir Celje margskonar framtaksverkefni til þéttbýlisendurnýjunar. Í gagnvirka Tæknigarðinum, sem er fyrrum verslunarmiðstöð sem hefur verið breytt í tæknimiðstöð, getur þú kafað ofan í nýsköpun og listrænu hliðina á vísindum. 

Finna má líka nútímavæddan markað, með sína opnu byggingu sem leyfir birtu og lofti að flæða inn. Meðan þú dvelur þar, eru margar aðrar áhugaverðar byggingar og staðir að skoða, eins og Skylight ljósmyndastúdíó Josip Pelikan, opinber menningarminnisvarði sem sýnir verk þessa ljósmyndameistara. Þar geturðu fengið fræðslu um lífsferil ljósmyndar; hver hæð er tileinkuð ákveðnu stigi ljósmyndaframleiðslu.

Fyrir þá ævintýragjarnari, þá er Ævintýragarður Celje, frábær umhverfisvænn staður fyrir útihreyfingu og til að hafa gaman.

Image
Celje
Coordinates
46.2358863,15.2195842
Tags with icon
Urban renewal
Sustainable initiatives
Name
Zagreb
Country
Croatia
Population
684000
Why visit?

Höfuðborg Króatíu, Zagreb, sem staðsett er í norðvestri á landinu, er evrópskur gimsteinn stútfullur af sögulegri byggingalist og samtímahönnun þéttbýlis, blöndu sem endurspeglar ímynd New European Bauhaus  (NEB) fullkomlega. Í hjarta borgarinnar er Neðri bærinn, með sín ótrúlega vel varðveittu byggingalistaverk frá tímum Habsborgaraveldis.

Zagreb er líka þekkt fyrir sína fjölmörgu garða, skóga og vötn og var útnefnd Evrópska græna höfuðborgin árið 2016. Skoðaðu Botanicki Vrt, nítjándu aldar grasagarð og safn sem rekið er af vísindadeild háskólans til að auka skilning á fegurð veraldar okkar.

Ef þú ráfar um borgina, finnurðu Trg bana Josipa Jelačića-torgið, sem er miðtorg með sexhyrndum brunni. Þar getur þú skoðað Listaskálann, sem er fyrsti virti sýningarvettvangurinn í Suð-Austur Evrópu.

Höfuðborgin býður líka upp á nokkur óvenjuleg söfn og sýningar, meðal annars Safnið um sambandsslit, hannað til þess að hjálpa okkur að kanna og fræðast um mannlega ást og missi. Og ekki gleyma króatíska safninu um bernska list, sem stofnað var í kringum 1950 og er enn yfirfullt af verkum eftir listafólk með misjafnan bakgrunn.

 

Image
Zagreb
Coordinates
45.8402941,15.8942921
Tags with icon
Rediscover the history
NEB Projects
Rich in green spaces