Skip to main content
Submitted by Elisavet KOZAKOU on
Draw lines
No
Color
#fea415
Cities/Points
Name
Nikósía
Country
Cyprus
Population
241000
Why visit?

Ertu að leita að hreint magnaðri Miðjarðarhafsupplifun? Ekki ofhugsa það og bættu Nikósíu við DiscoverEU ferðina þína! Höfuðborg Kýpur liggur lengst í suðaustur af öllum höfuðborgum aðildarríkja ESB og hefur verið í samfelldri byggð í yfir 4.500 ár. Hún býður upp á fallegt landslag, dýrindis matargerð og lifandi menningarlíf. Allt sem þú þarft fyrir frábæra ferð! Þegar þú ert í Nikósíu skaltu ekki gleyma að fara í göngutúr um hinn risastóra Athalassa-þjóðgarð eða gera eins og Kýpverjar og drekka kaffi á einhverri af krám borgarinnar. Nikósía á sér djúpar rætur en hefur einnig einsett sér að verða snjöll (snjallari) borg. Sveitarfélagið hleypti af stokkunum snjallborgarverkefni sínu árið 2018 og er nú að setja upp ókeypis þráðlaust net þökk sé fjármögnun frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Image
Nikósía
Coordinates
35.1923176,33.362297
Tags with icon
Smart city
Free public Wi-Fi
City app
Name
Valletta
Country
Malta
Population
224000
Why visit?

Höfuðborg Möltu, Valetta, sem var valin Menningarhöfuðborg Evrópu árið 2018 og er á heimsminjaskrá UNESCO, er alger fjársjóður. Á meðan þú ert í borginni skaltu fara í Upper Barrakka Gardens um hádegisbil til að sjá daglega skotsýningu úr fallbyssusamstæðu sem er mögulega sú elsta í heimi af þeim sem enn eru í notkun. Þetta hefur átt sér stað í margar aldir. Og ef þú ert að leita að frábærri leið til að skoða borgina skaltu hoppa upp í eina af skemmtilestum Möltu (Fun Trains). Lestin mun taka þig í 30 mínútna ferð frá framhlið St John's Cathedral til staða sem þú kæmist ekki að fótgangandi. Til að kynnast Valletta enn betur og fylgjast með menningardagskrá hennar, skaltu nota upplýsingamiðstöðvarnar sem staðsettar eru í borginni.

Image
Valetta
Coordinates
35.8984892,14.5087768
Tags with icon
Digital public services
Sustainable technology
Name
Dublin
Country
Ireland
Population
516000
Why visit?

Dublin er sláandi hjarta Írlands þar sem allir eru velkomnir eins og gamlir vinir. Svo hvers vegna ekki að koma við? Ekki missa af Dyflinnarkastala sem er frá miðöldum og farðu í göngutúr á Howth Cliff og fáðu útsýni yfir Dublin Bay. Til að upplifa fleiri ævintýri og sjá stórbrotið útsýni skaltu hoppa upp í eina af lestunum sem fara eftir allri strandlengju þessarar írsku borgar. Þegar kvölda tekur skaltu fara á Whelan's, sem er fræg krá og tónleikastaður í Dublin, til að horfa á tónleika. Dublin var nýlega viðurkennd sem ein af snjöllustu borgum heims. Á meðan þú ert í höfuðborg Írlands getur þú hlaðið rafhlöðurnar þínar í snjöllum götumunum, sem eru með samþættar sólarknúnar síma- og rafhjólahleðslustungur, þráðlaust net, stafræn auglýsingapláss og snjöll hjólalæsikerfi. Dublin státar af 5G netkerfi sem er hið fyrsta sinnar tegundar og notar götumuni – eins og ruslatunnur og staura – til að tryggja að allir í borginni séu betur tengdir. Dublin hefur einnig tekið framförum á sviði aðgengis og hlaut sérstaka viðurkenningu frá Access City Awards árið 2011.

Image
Dublin
Coordinates
53.3244427,-6.3861288
Tags with icon
Smart city
Free public charging
Free public Wi-Fi
Name
Reykjavík
Country
Iceland
Population
130000
Why visit?

Nyrsta höfuðborg heims er líka ein besta borgin fyrir ferðamenn þökk sé menningarlífi, næturlífi og náttúruundrum sem eru steinsnar frá borginni! Þú getur byrjað ferð þína á því að njóta ótrúlegs 360° útsýnis yfir alla borgina frá toppi Hallgrímskirkju, kirkju í expressjónískum stíl sem gnæfir yfir miðbæinn. Þaðan skaltu halda að hinu merka tónleika- og ráðstefnuhúsi Hörpu og njóta glæsilegrar byggingarlistar. Verslunarunnendur mega ekki missa af gönguferð um Laugaveginn, einni elstu götu borgarinnar, þar sem er að finna margar verslanir, veitingastaði og bari. Þú gætir líka viljað stoppa þar til að smakka hefðbundið íslenskt hnossgæti eins og kæstan hákarl og njóta næturlífsins á einhverjum af vinsælum börum borgarinnar. Og eftir að þú hefur skemmt þér, af hverju ekki að hlaða batteríin í einni af mörgum jarðhitalaugum sem þar er að finna? Ekki hafa áhyggjur af samgöngum: þú getur einfaldlega notað símann þinn til að taka strætó! Það er bara ein af þeim leiðum sem þessi snjalla borg nýtir upplýsinga-, samskipta- og fjarskiptatækni til að bæta lífsgæði á sjálfbæran hátt. Að öðru leyti hafa sveitarfélögin tengt saman stofnanir, þar á meðal almenningsveitur, til að bæta hagkvæmni og stafræn tækni er notuð til að virkja jarðhita til að knýja borgina á grænan hátt.

Image
Reykjavík
Coordinates
64.1333893,-22.123025
Tags with icon
Paperless tickets
Smart city
Digital public services
City app