Skip to main content
Submitted by Olivia-Eliza C… on
Draw lines
Yes
Color
#8b0000
Cities/Points
Name
Niš
Country
Serbia
Population
260000
Why visit?

Niš hefur á táknrænan hátt afhent þekktum leikurum lykilinn að borginni sem hluti af Niš kvikmyndahátíðinni sem fer fram í virkishringleikahúsinu í Niš undir berum himni. Á meðal þess sem er athyglisvert að skoða í Niš er Skull Tower — steinbygging þar sem höfuðkúpur 58 manna eru innbyggðar. Turninn, sem er ógnvekjandi áminning um fyrstu serbnesku uppreisnina árið 1809, er tákn um sjálfstæði Serbíu og lykilþáttur í þjóðerniskenndinni. Söguáhugamenn ættu ekki að láta Mediana fornleifasvæðið fram hjá sér fara – en það er fæðingarstaður rómverska keisarans Konstantínusar mikla.

Image
Niš
Coordinates
43.316238,21.85834
Tags with icon
Historic Architecture
Exciting Culinary Options
Walkable City
Name
Skopje
Country
North Macedonia
Population
488100
Why visit?

Höfuðborg Norður-Makedóníu er fjársjóður menningar á Balkanskaga. Kvikmyndir eru mikilvægur hluti af arfleifð hennar og borgin ber þess merki – nokkrar kvikmyndahátíðir eru haldnar í Skopje allt árið um kring, allt frá alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni KineNova til heimspekilegu kvikmyndahátíðarinnar. Farðu í göngutúr um sögulega hluta borgarinnar og týndu þér meðal hefðbundinna handverksverslana í hinum heillandi Old Bazaar, einum stærsta markaði á Balkanskaga. Þaðan skaltu svo fara að Stone Bridge, einu af helstu kennileitum borgarinnar, en hún var byggð á 15. öld á rómverskum grunni.

Image
Skopje
Coordinates
41.9991487,21.3898709
Tags with icon
Historic Architecture
Notable Museums
Plenty of Nature
Name
Bitola
Country
North Macedonia
Population
74600
Why visit?

Þú hefur ef til vill heyrt að frönsku Lumière bræðurnir séu feður kvikmyndarinnar, en það er ekki víst að þú hafir heyrt um samtímamenn þeirra – brautryðjendurna Yanaki og Milton Manaki. Þetta tvíeyki tók fyrstu kvikmyndir Balkanskaga í Bitola nokkrum árum eftir að fyrsta Lumière myndin var tekin. Þeir komu einnig með fyrstu Bioscope 300 kvikmyndavélina til landsins. Þessa dagana lifir arfleifð þeirra áfram á Manaki Brothers International Cinematographers Film Festival, fyrstu og elstu hátíðinni sem er tileinkuð kvikmyndatökumönnum. Þegar þú ert í bænum skaltu ganga niður Shirok Sokak, eins kílómetra langa göngugötu með heillandi nýklassískum byggingum á hvorri hlið. Gerðu eins og heimamenn og komdu við á einum af mörgum kaffihúsum til að sötra glas af ískaffi á veröndinni, sérstaklega ef það er sumar!

Image
Bitola
Coordinates
41.0258341,21.3110759
Tags with icon
Rich in Music
Great for Performance Arts
Walkable City
Name
Þessalóníka
Country
Greece
Population
315000
Why visit?

Suðrænn sjarmi Þessalóníku, sem er staðsett við ströng Miðjarðarhafsins, hefur gert hana að eftirlætisborg leikstjóra sem leita að óvenjulegum tökustöðum. Kvikmyndir eins og Ulysses' Gaze frá 1995, með Harvey Keitel í aðalhlutverki, ásamt Hollywood stórmyndum á borð við The Expendables 4 frá 2022 með Sylvester Stallone og Jason Statham, hafa verið teknar í þessari hafnarborg. Fyrir aðdáendur heimildarmynda er alþjóðleg heimildamyndahátíð einnig haldin í Þessalóníku. Við sjávarbakkann er einnig að finna kvikmyndasafnið í Þessalóníku, Cinema Museum of Thessaloniki, þar sem gríska kvikmyndasagan er til sýnis.

Image
Þessalóníka
Coordinates
40.6212524,22.9110079
Tags with icon
European Capital of Culture
UNESCO World Heritage List
Rich in Music
Exciting Culinary Options
Name
Elefsína
Country
Greece
Population
30000
Why visit?

Elefsína á sér glæsilega fortíð – hún er þekktust fyrir að vera staður Eleusínísku leyndardómanna, eins frægasta trúaratburðar forngrískra trúarbragða, og fæðingarstaður Aiskýlosar, eins þekktasta harmleikjaskálds Grikklands. Aeschylia-hátíðin, hátíð kvikmynda, tónlistar og leikhúss sem fer fram í fyrrum iðnaðarverksmiðju á hverju sumri, er ein áhrifamesta hátíð Grikklands. Í Elefsínu eru kvikmyndir einnig sýndar utandyra og þar er útikvikmyndahátiðin Athens Open Air Film Festival haldin í júní. Sem Menningarhöfuðborg Evrópu árið 2023 mun Elefsina leggja áherslu á tengslin á milli sögu hennar, íbúanna, umhverfisins og borgarinnar sjálfrar.

Image
Elefsína
Coordinates
38.0497174,23.5216009
Tags with icon
European Capital of Culture
Historic Architecture
Plenty of Nature
Walkable City