Skip to main content
Submitted by Elisavet KOZAKOU on
Draw lines
Yes
Color
#db7093
Cities/Points
Name
NEB hetjuborg: Varsjá
Country
Poland
Population
1795000
Why visit?

Höfuðborg Póllands, Varsjá er mikil menningarleg, pólitísk og efnahagsleg miðstöð. Þetta endurspeglast í hönnun hennar og arkitektúr, sem hefur að fullu innleitt gildi New European Bauhaus (NEB).

Verkefni eins og FOLK-hugmyndin, í Varsjá miða að því að endurnýja núverandi arkitektúr með framtíðina í huga. FOLK, sigurvegari New European Bauhaus Rising Stars Award 2022, blæs nýju lífi í gamlar hlöður og korngeymslur og endurnýjar þær til að mæta þörfum nútímans á sama tíma og einkenni þeirra eru varðveitt. Mörg nýstárleg íbúðarrými í þéttbýli hafa einnig verið byggð með nútímalega og sjálfbæra hönnun í huga, eins og Zlota 44, skýjakljúfur með þökum sem eru hönnuð til að safna regnvatni. Verið er lýðræðisvæða þetta endurnýjunarferli með verkefnum eins og ReStore, verslun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni og býður upp á nýjar og notaðar sjálfbærar innréttingar og efni.

Það er ómögulegt að hunsa þessar umbreytingar í Varsjá. Heimsæktu hina goðsagnakenndu Koneser vodkaverksmiðju og dáðstu að gömlum eiginleikum hennar á meðan þú skoðar verslunarrými, bari, veitingastaði, hótel og margt fleira. Norblin Factory er annað vel heppnað borgarendurnýjunarverkefni sem þú ættir að skoða, sérstaklega fyrir safnið, BioBazar, ArtBox Experience og Food Town sem státar af 23 matargerðarhugmyndum víðsvegar að úr heiminum.

Image
Varsjá
Coordinates
52.2330653,20.9211126
Tags with icon
NEB prize
Sustainable initiatives
Urban renewal
Name
Katowice
Country
Poland
Population
289000
Why visit?

Katowice er staðsett á Silesíu-svæðinu og aðhyllist að fullu gildi New European Bauhaus (NEB), og er fyrrum iðnaðarmiðstöð Póllands. Saga borgarinnar er samofin sögu kolanámu hennar – fortíð sem Katowice hefur notað til að breyta sér í sjálfbæra borg framtíðarinnar. Með fjárhagslegum stuðningi frá ESB hefur MOLOC-verkefnið breytt námunni í menningarmiðstöð, nú heimkynni Spodek Arena, pólsku þjóðarsinfóníuhljómsveitarinnar, alþjóðlegu ráðstefnumiðstöðvarinnar og Silesíusafnsins.

Fyrir utan kolaiðnaðinn er borgin þekkt fyrir málm- og glerarkitektúr. Byggingar hennar eru undir miklum áhrifum frá póstiðnaðar arkitektúr, með módernískum og Art Nouveau einkennum. Framhlið stórverslunarinnar Skarbek, hringtorgið í miðju borgarinnar og Superjednostka byggingin eru áhrifamikil dæmi um hvernig langvarandi, endurvinnanleg og aðlögunarhæf efni gegna mikilvægu hlutverki við að skapa einstaka hönnun.

Katowice hedur einstaka upplifun til að bjóða gestum þökk sé tengingu hennar við fortíðina. Giesche postulínsverksmiðjan og rými hennar hýsa nú tónleika og aðra viðburði, og fyrrum verkamannahverfið Nikiszowiec – heimili einstaks arkitektúrs snemma á 20. öld – er nú menningar- og félagsmiðstöð.

Þú getur líka heimsótt Śląskie-safnið, sem er rými fyrir samræður milli fortíðar og nútíðar. Eða skoðað Silesian-garðinn, eina stærstu græna fjárfestingu í Efri-Slesíu. Að því loknu getur þú slappað af og notið baranna og klúbbanna á götunni Mariacka.

Image
Katowice
Coordinates
50.2136939,18.8636717
Tags with icon
Urban renewal
Name
Prag
Country
Czechia
Population
1275406
Why visit?

Prag er gjöf sem heldur áfram að gefa, sérstaklega þegar kemur að sögulegri byggingarlist og nálgun hennar að sjálfbærri nútímavæðingu byggingarlistar. Borgin styður mismunandi verkefni sem byggja á helstu gildum New European Bauhaus (NEB). Prag er ein þeirra borga sem er í fararbroddi CrAFt verkefnisins, sem miðar að því að finna fyrirmyndir um hvernig borgir geta skipt yfir í loftslagshlutleysi á inngildandi, sjálfbæran og fallegan hátt. Hún er líka heimili Reclaim Žižkov verkefnisins sem vann New European Bauhaus Rising Stars verðlaunin og miðar að því að hjálpa þessu sögulega verkamannahverfi að halda sinni gömlu sál andspænis miðstéttarvæðingu.

Ef þú vilt upplifa mismunandi hliðar þessarar borgar sem er í umbreytingu skaltu heimsækja hið fjölbreytta Holešovice-hverf, sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga þökk sé skemmtilegum tískuverslunum, kaffihúsum og galleríum. Eða kíkja á Dancing Housei, sjaldgæft dæmi um afbyggingarstefnu sem er innblásin af Art Nouveau; eða Žižkov-sjónvarpsturninn, sem sumir gætu sagt að sé ein ljótasta – en þó mest heillandi – bygging í heimi.

Hvert sem þú ákveður að fara skaltu ekki missa af tækifærinu til að heimsækja Petřín-útsýnisturninn eða Letná-garðinn, þar sem þú getur fengið þér drykk og dáðst að töfrandi útsýni yfir borgina. Ef það er ekki nóg skaltu skoða hinn líflega Rašínovo nábřeží bakka og allt sem hann hefur upp á að bjóða allt árið um kring.

Image
Prag
Coordinates
50.0598058,14.3255421
Tags with icon
NEB Projects
Name
Marsa
Country
Malta
Population
5730
Why visit?

Marsa, sem er lítil hafnarborg í suðausturhluta Möltu, var í sviðsljósi Evrópu árið 2015 þegar hún hýsti Eurovision söngvakeppnina. Þó að skipasmíðastöðvar hennar og Grand Harbour höfnin hafi gegnt mikilvægu hlutverki í sögu landsins reynir Marsa nú að ögra dvínandi örlögum sínum. Hún hefur að fullu tileinkað sér anda New European Bauhaus (NEB) með því að styðja við sjálfbærar og inngildandi breytingar á arkitektúr.

Borgin er heimili „Malta sem ganghæf borg“ verkefnisins, sem miðar að því að breyta regnafrennsliskerfi landsins sem sjaldan er notað í þjóðvegi fyrir gangandi vegfarendur. Með verkefninu er stefnt að því að gera líf íbúa ánægjulegra og sjálfbærara með því að endurhanna hreyfanleika í þéttbýli.

Árið 2022 var borgin útnefnd menningarhöfuðborg Möltu – sem var viðurkenning á möguleikum þessa litla en líflegu þéttabýliskjarna og ákall um að enduruppgötva þennan merka sögulega bæ sem einkennist af leifum skipasmíða og iðnaðarstarfsemi. 

Búðu þig undir alvöru fjársjóðsleit á meðan þú ert í Marsa. Þú getur heimsótt póstsafn Möltu og fræðst um hvernig Möltu – í miðju Miðjarðarhafi – hefur tekist að halda sér í tengslum við umheiminn. Og kíkt á kappreiðabrautina í Marsa, sem var byggð árið 1868, eða fengið þér afslappandi göngutúr um smábátahöfnina.

Image
Marsa
Coordinates
35.8757762,14.4743401
Tags with icon
Sustainable initiatives
Urban renewal
NEB Projects