Skip to main content
Submitted by Elisavet KOZAKOU on
Draw lines
Yes
Color
#556b2f
Cities/Points
Name
Búdapest
Country
Hungary
Population
1752286
Why visit?

Á sama tíma og ungverska höfuðborgin er trú sínum hefðum, er hún líka að horfa til framtíðar gegnum sjálfbærar og aðgengilegar umbreytingar á borgarumhverfinu. Með því að gera svo, tekur Búdapest smám saman inn gildi og markmið New European Bauhaus (NEB). Til dæmis skapar verkefnið Cooling Corners and Corridors (CoolCos) nýstárleg mannvirki sem eru hönnuð til að draga úr áhrifum hitabylgna.. Borgin hefur einnig fengið viðurkenningu fyrir aðgengileika með sérstakri tilnefningu við veitingu verðlauna fyrir Evrópsk borg aðgengileika árið 2015.

Ef þú þarft að komast á kyrrlátan stað meðan á skoðun borgarinnar stendur, kíktu þá á Margrétareyju - græna vin í miðri Dónár. Eða komdu við í Áróru loftslagsgarðinum, krúttlegum litlum stað sem leitast við að endurheimta náttúruleg vistkerfi í borgarumhverfi, á sama tíma og þekkingu um garðryrkju og mataröryggi er deilt.

Ef list er hins vegar þinn tebolli, þá geturðu heimsótt FKSE-galleríið sem sérstaklega er ætlað ungu listafólki, hvers hjartans mál snýst um félagsleg málefni.

Farðu að lokum upp Kastalahæðina til að dást að Sjómannavíginu, og njóttu undurfagurs útsýnis yfir borgina og Dóná.

Image
Búdapest
Coordinates
47.4813602,18.9902209
Tags with icon
Sustainable initiatives
Access City Award winner
NEB Projects
Name
Nyíregyháza
Country
Hungary
Population
117689
Why visit?

Nyíregyháza er hluti af verkefninu Milli svæða í Evrópu sem snýst um sjálfbærni með áherslu á stafrænt hagkerfi. Milli svæða-verkefnið kemur sveitarfélögum saman til að deila nýstárlegum og sjálfbærum lausnum við áskoranir vegna byggðaþróunar. Til að auka notkun þessara lausna og stækka byggðasögugagnagrunninn, hjálpar bókasafn Nyíregyháza borgarbúum að nota stafræn kerfi og tól . Það eflir bókmenntir gegnum símaljóðabás sem felst í því að gestir geta valið ljóð úr efnisskrá, hringt í númerið og hlustað á ljóðið.

Hefurðu þörf á því að sjá eitthvað grænt? Að fella náttúru inn í borgarlandslag, sem er eitt af aðalmarkmiðum New European Bauhaus (NEB), er það sem Tuzson János grasagarðurinn gerir. Sem hluti af háskólasvæði borgarinnar, hýsir það mikið úrval plantna í umhverfi sem samanstendur af stóru gróðurhúsi, japönskum garði og stöðuvatni.

Ekki missa af Tónlistarbrunninum í Sóstó, þar sem nærstaddir geta orðið vitni að stórkostlegri sýningu. Eða kíktu á Útisafnið í Sóstó, sem var einu sinni þorp, og fáðu innsýn í það hvernig fólk var vant að lifa og taktu þátt í viðburðum sem ætlaðir eru til þess að fræða gesti um þjóðlegar hefðir.

Image
NYÍREGYHÁZA
Coordinates
47.9424892,21.6308696
Tags with icon
Sustainable initiatives
Rediscover the history
Name
Cluj-Napoca
Country
Romania
Population
303047
Why visit?

Cluj-Napoca, sem er önnur fjölmennasta borg Rúmeníu og óformleg höfuðborg Transylvaníu, er græn og öllum opin. Hin sterka háskólahefð borgarinnar og metnaður fyrir byggðaþróun gerir hana að leiðarljósi fyrir New European Bauhaus (NEB) varðandi bætt þéttbýli. Borgin, sem hýsir CREIC-miðstöðina fyrir skapandi iðnað og einn af stærstu háskólum í Evrópusambandinu, hefur áunnið sér sess á lista ROCK fyrirmyndarborga og sýnt hvernig menningararfur er uppspretta endurnýjunar, þróunar og vaxtar.

Notaðu tækifærið meðan þú dvelur þar og heimsæktu gömlu Casino-bygginguna í Cluj-Napoca, sem staðsett er í miðjum Aðalgarðinum og er nú nýtt sem Borgarmenningarmiðstöð.

Gættu þess að líta upp og skoða dásamlegar byggingar í gotneskum stíl meðan þú röltir um bæinn. Eða farðu einn hring um Romulus Vuia þjóðfræðisafnið til að fræðast um þjóðmenningu.

Grasagarðurinn er einnig heimsóknar virði með sínum rómversku og japönsku görðum, grasasafni og litríku plöntum og blómum.

Langar þig að sjá mynd eða lifandi tónlist? Ef þú ert að heimsækja borgina meðan á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Transylvaníu stendur (TIFF), þá ertu heppin(n)! Og ekki missa af því að kíkja á nýstárlegu hárstofuna Hairgonomy, þar sem reglulega er fluttur lifandi tónlistarflutningur og plötusnúðar koma fram.

Image
CLUJ-NAPOCA
Coordinates
46.7834135,23.4729906
Tags with icon
Rediscover the history
Rich in green spaces
Name
Sighișoara
Country
Romania
Population
26370
Why visit?

Sighișoara er ein af elstu múruðu borgum í heiminum sem enn er búið í. Vegna sinna róta í transylvanískri-saxneskri menningu, er borgin hluti af áætlun UNESCO’s heimsminjaborga. Tilgangur áætlunarinnar er að varðveita sögulegt gildi borgarinnar og á sama tíma efla nútímalegt yfirbragð hennar, og fá þannig vel heppnaða blöndu af hefð og nýsköpun í anda New European Bauhaus (NEB).

Sögulegi miðbær borgarinnar, eða Borgarvirki Sighișoara, var útnefnt á heimsminjastaðalista UNESCO árið 1999. Ráfaðu um steinlagðar göngugötur borgarinnar með sínum litríku húsum, eins og t.d. Casa Venețiană með sína grænu framhlið.

Forvitin(n) um hefðir miðalda? Þá ættu Miðaldarhátíðirnar að vera fyrir þig, ef þú ert á ferðinni þegar þær eru haldnar.

Image
SIGHISOARA
Coordinates
46.2230343,24.7761976
Tags with icon
UNESCO World Heritage List
Rediscover the history
Name
Búkarest
Country
Romania
Population
1829897
Why visit?

Með sínu jarðgerðarverkefni Matur fyrir jörðina, er Búkarest að marka sína leið að sjálfbærum lifnaði. Hún hýsir einnig tvo New European Bauhaus (NEB) verðlaunahafa: Annars vegar Dăm Click pe România (smelltu á Rúmeníu), sem gefur uppgerðar tölvur til að stuðla að minnkun menntunarbilsins; og hins vegar, Metaelhdhúið, sem er uppsetning á verkefni sem snýst um að endurheimta sögulegar uppskriftir.

Það er ekki að furða að Búkarest er líka þekkt sem „litla París Austursins“, þar sem hún býr yfir glæsilegri byggingalist. Sigurboginn, George Enescu-safnið og Macca-Vilacrosse húsasundið eru aðeins hluti af mörgum yndislegum stöðum sem minna á frönsku höfuðborgina, en vert að skoða vegna eigin verðleika.

Farðu í göngutúr um gamla bæinn til að anda að þér sögulegu andrúmslofti borgarinnar. Ef það rignir og þig þyrstir í liti, kíktu þá á Victoriei-húsasundið,þar sem gatan er gjörsamlega yfirbyggð með litríkum regnhlífum.

Image
Búkarest
Coordinates
44.4379269,26.024598
Tags with icon
Sustainable initiatives
NEB prize
Name
Plovdiv
Country
Bulgaria
Population
348000
Why visit?

Sem handhafi Evrópskrar menningarhöfuðborgar árið 2019, hefur Plovdiv nýtt sér stöðuna sem miðdepil menningar til að hraða umbreytingu sinni til að verða leiðarljós fyrir sjálfbærni, fegurð og aðgengi, svo og að taka fyrstu skrefin til að takast á við loftmengun.

Eitt frábært verkefni í Plovdiv sem uppfyllir gildi New European Bauhaus’ (NEB) er Borgardraumar. Verkefnið hefur falist í að tileinka sér sjálfbæra og listræna nálgun til að endurlífga auð svæði í Kapana-hverfinu, með skýrri skírskotun til nýsköpunar, uppgötvunar, menningar og listsköpunar.

Borgarmynd Plovdiv hefur verið breytt gegnum listaverk: Víðs vegar um borgina má finna veggjakrot eftir listakonur sem eru hluti af Skynjun á borg-verkefninu sem innblásið er af hugmyndinni um aðgengi fyrir alla, öryggi og sjálfbærni.

Meðan á dvöl þinni í Plovdiv stendur, er um að gera að heimsækja Þjóðfræðilega héraðssafnið - ekki aðeins til að dást að heillandi og fagurri framhliðinni, heldur líka þegar inn er komið, að upplifa búlgarskar hefðir og menningu.

Image
Plovdiv
Coordinates
42.1441622,24.6691163
Tags with icon
Sustainable initiatives
Urban renewal
European Capital of Culture
Name
Istanbúl
Country
Türkiye
Population
15636000
Why visit?

Istanbúl, sem liggur milli tveggja heimsálfa, var tekin inn í tengslanet skapandi borga í UNESCO vegna stöðu sinnar sem miðstöð fyrir hönnun. Hin árlega Samtímalistasýning í Istanbúl, sem vekur athygli á nýjum skapandi hugmyndum, er aðeins einn angi af skapandi anda borgarinnar.

Til að sjá nútímalega útfærslu á gömlum hefðum, ættirðu að kíkja á Kadiköy-matarmarkaðinn, þar sem matarkörfur hafa verið endurhugsaðar út frá nýrri hugmynd eftir TAK, samvinnuhóp listamanna og hönnuða.

Sláandi dæmi um ferðalag Istanbúls í átt að markmiðum New European Bauhaus (NEB), eins og t.d. að vera græn og aðgengileg, er umbreyting Laleli-hverfisins í gönguhverfi, þar sem hægt er að rölta um bíllausar götur á daginn.

Ef þig langar að fara aftur til tímabils Ottómana, ekki missa af Bláu moskunni, sem er eitt af auðkennum menningar- og sögulegs Tyrklands, eða kíktu á Topkapi-höllina, sem var aðaldvalarstaður soldána Ottómana í margar aldir.

Image
Istanbúl
Coordinates
41.0054958,28.8720967
Tags with icon
UNESCO World Heritage List
Sustainable initiatives