Skip to main content
Submitted by Beatriz RODRIG… on
Route Family
Draw lines
Yes
Color
#1D5A04
Cities/Points
Name
Tampere
Country
Finland
Population
226696
Why visit?

Finnland, með sínum 188 000 vötnum og 3 milljónum sánum, er land þar sem fólkið skilur gildi þess að vera í snertingu við vatn. Tampere, sem staðsett er á Vesturvatnasvæði Finnlands, er milli tveggja stórra vatna, Näsijärvi og Pyhäjärvi, og það eru yfir hundrað fleiri innan borgarmarka. Við næstum öll vötn er hægt að finna stað til að synda. Ef þú ert hugrakkur, þá geturðu reynt avanto (vetrarsund), hefðbundna finnska útivistarhreyfingu sem hefur verið stunduð að minnsta kosti frá 17. öld. Ef þú ákveður að láta vaða, hví ekki þá að tvinna saman íssund og heita sánuheimsókn á staðnum? Í Tampere, er Rauhis sána þægilega staðsett nálægt baðströnd og miðbænum.

Image
Tampere - Finnland
Coordinates
61.6315313,23.5006774
Tags with icon
Spots to Swim
Plenty of Nature
Name
Tartu
Country
Estonia
Population
97000
Why visit?

Árið 2023, var Tartu gestgjafi Norðurlandameistaramótsins í sundi, þar sem sundmenn komu hvaðanæva að úr héraðinu. Mótið var haldið í Aura-vatnsgarðinum, sem er opinn almenningi svo hann geti séð sundlaugina og sánuna. Ef þú vilt frekar synda úti, þá hefur Tartu frábæra sundstaði innanbæjar, þangað sem heimamenn elska að fara og kæla sig í á sumrin. Einn sá þekktasti er ströndin við Verevi-vatnið, eða þú getur fundið þinn eigin uppáhaldsstað. Fyrirferðalítil stærð borgarinnar auðveldar að komast á milli staða gangandi og sjá merkisstaði borgarinnar, eins og Eistneska þjóðarsafnið. Árið 2020 fékk borgin sérstaka umsögn vegna Aðgengisborgar-verðlaunanna og Tartu er einnig Evrópsk menningarhöfuðborg 2024.

Image
Tartu - Eistland
Coordinates
58.3749253,26.6501442
Tags with icon
Spots to Swim
European Capital of Culture
Access City Award Winner
Name
LIEPĀJA
Country
Latvia
Population
68945
Why visit?

Lokaðu augunum og láttu þig dreyma um fullkomna strönd. Hvað sérðu? Fínan, hvítan sand og hreint vatn? Leyfðu mér að kynna þig fyrir Liepāja-ströndinni, vinsælum sundstað síðan um 1860 og Bláfánaströnd, sem þýðir að hún hefur náð ströngum kröfum vegna gæða umhverfis og vatns. Ekki missa af heimsókn til Liepāja-vatnsins, sem er Natura 2000 varið svæði með varp- og farfuglum og 1 km löngum göngustíg. Eða ef þú ert í ævintýraleit, kíktu þá á Karosta, fyrrum herfangelsi og það eina sem opið er ferðafólki í Evrópu. Þú munt sjá að fangelsið er að mestu óbreytt frá tímum Rússakeisara, getur séð klefana og heyrt skuggalegar sögur af lífinu í fangelsinu.

Image
Leipaja - Lettland
Coordinates
56.5370723,20.8691224
Tags with icon
Spots to Swim
Plenty of Nature
Name
Klaipėda
Country
Lithuania
Population
152818
Why visit?

Klaipėda er staðsett á kurónska tanganum, 98 km löngum, þunnum, hvelfdum sandöldutanga sem aðgreinir kurónska lónið frá Eystrasalti. Vegna einstaks landslags sands og trjáa hefur staðurinn fengið stöðu á heimsminjastaðalista UNESCO. Það er fjöldi baðstranda í nágrenninu þar sem hægt er að fara í sólbað, synda eða hendast í náttúruna. Smiltynė, sem aðeins er hægt komast til með ferju, er ein sú besta. Í borginni Klaipėda má finna Litháíska sjávarsafnið, sem hefur að geyma 24 fiskabúr sem sýna 4 mismunandi vistkerfi (ferskvatn-, Eystrarsalts-, Norðursjávar- og hitabeltisvatnskerfi).

Image
Klaipėda - Litháen
Coordinates
55.7044638,20.8622473
Tags with icon
Spots to Swim
UNESCO World Heritage List
Name
Paphos
Country
Cyprus
Population
35961
Why visit?

Það er sagt að Afródíte hafi fæðst nálægt Paphos. Það er viðeigandi staður fyrir fegurðargyðjuna, með sínar fullkomnu strendur og hreint vatn - Kýpur er með einhver bestu vatnsgæðin í Evrópu. Eða ef þú vilt frekar halda þig á þurru landi, þá er dásamleg strandargönguleið nærri Paphos eða þú getur skoðað Akamas-þjóðgarðinn, þar á meðal Avakas-gljúfrið sem er þekkt fyrir fjölbreytni planta og fugla. Svæðið nálægt Paphos er líka ríkt af fornfræðilegum heimsminjastöðum af lista UNESCO og Paphos var Evrópsk menningarhöfuðborg 2017.

Image
Paphos - Kýpur
Coordinates
34.7726806,32.412411
Tags with icon
Spots to Swim
European Capital of Culture