Skip to main content

C.8 Hvað ef ég verð að aflýsa ferðalaginu mínu eða breyta því?

Verktakinn sem sér um ferðapassann veitir nánari upplýsingar um mögulegar afpantanir eða breytingar. 

Ef þú vilt aflýsa þátttöku þinni ertu vinsamlega beðin/n um að hafa samband við verktakann áður en þú bókar ferðapassann. Þá getur verktakinn boðið umsækjanda á biðlistanum ferðapassann og afsláttarkortið sem ekki eru nýtt. 

C.13 Get ég ferðast í hópi þó að ég hafi verið valin(n) á einstaklingsgrundvelli?

Þér er frjálst að ferðast með vinum sem hefur líka verið úthlutað ferðapassa. Þú getur líka skipt um hóp og jafnvel um átt hvenær sem er í ferðinni þinni.

Passaðu bara þegar bókanirnar eru gerðar að hafa sama upphafsdag og hinir þátttakendurnir sem þú vilt ferðast með.
 

B.8 Hvað ef ég tók fram að ég vildi ferðast ein(n) en langar seinna til að mynda hóp með vinum mínum?

Allir þátttakendur geta orðið hópstjórar. Sem umsækjandi geturðu bætt við, meðan á umsóknartímabilinu stendur, allt að fjórum vinum sem uppfylla skilyrði DiscoverEU um gjaldgengi, jafnvel þótt þú hafir tekið fram á umsóknareyðublaðinu að þú viljir ferðast ein(n) þíns liðs. Til að vinir þínir geti verið með í umsókninni þinni þarftu að láta þá hafa umsóknarkóðann sem þú færð sendan með tölvupósti. Hann verður þá kóði hópsins.

Subscribe to