Skip to main content

B.15 Ég er á varalistanum, hverjar eru líkurnar á að ég fái ferðapassa?

Það fer eftir þremur þáttum:

  • hvernig þú svaraðir prófinu;
  • hversu margir þátttakendur staðfesta ekki þáttöku sína eða hætta þátttöku (þátttakendum á varalistanum er boðið ferðapassar sem ekki eru notast af þátttakendum sem urðu fyrir valinu);
  • fjölda ferðapassa sem veitt eru í búsetulandi þínu eða ríkisfangi (þar sem við á). 

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og EACEA geta veitt umsækjendum á varalista ferðapassa og afsláttarkort hvenær sem er allt að fullnýta tiltæka fjármuni.
 

C.5 Hvaða reglur gilda um ferðir úr búsetulandi og inn í það aftur?

Ferðapassinn verður gefinn út með ákveðnu búsetulandi. Landið sem skráð verður er það land sem þú hefur tilgreint í umsókninni. Það er ekki hægt að skrá annað búsetuland í ferðapassann en það land sem tilgreint er í umsókninni. Ferðir í þínu búsetulandi með ferðapassanum eru takmarkaðar við eina ferð út og eina ferð inn.

C.2 Hvað get ég ferðast til margra landa?

Þú getur ferðast til eins margra gjaldgengra landa og þú vilt.

En fjöldi ferðadaga er takmarkaður; t.d. getur þú verið erlendis í allt að einn mánuð, en innan þess mánaðar getur þú aðeins notað 7 daga til ferða (t.d. í lest).

Nánari upplýsingar um þetta má finna í spurningunum hér á eftir. Hinn utanaðkomandi verktaki mun einnig veita nánari upplýsingar ef umsókn þín ber árangur og þegar þú skipuleggur ferðina.

 

C.14 Á ég að bóka og kaupa ferðapassana sjálf(ur)?

Nei, þú átt ekki að bóka eða kaupa ferðapassa og miða sjálf(ur), þar sem passar sem eru keyptir upp á eigin spýtur eru ekki endurgreiddir. Ferðapassar og allir viðbótarmiðar vegna ferða verða eingöngu bókaðir, keyptir og afhentir af þeim verktaka sem útnefndur er af EACEA.

Þú ættir heldur ekki að bóka eða greiða fyrir neinskonar gistirými fyrr en þú ert orðinn fullviss um ferðadagsetningarnar og hefur fengið ferðapassann þinn afhentan.
 

Subscribe to