Skip to main content

C.9 Hvernig get ég undirbúið ferðina?

Á Evrópsku ungmennagáttinni finnurðu nytsamlegar upplýsingar og góðar ábendingar varðandi ferðalög í Evrópu

Þú verður að hafa gild ferðaskilríki og/eða vegabréf meðferðis á meðan á ferðinni stendur. Allt sem tengist slíkum skilríkjum (gildistími o.s.frv.) er á þína eigin ábyrgð. Þú ert lagalega skuldbundinn til þess að hafa gilt vegabréf eða nafnskírteini (ID) meðferðis á ferðalaginu. Þú finnur nánari upplýsingar um tryggingar í Reglunum, 16. kafla. „Tryggingar“. 

B.3 Hvernig get ég komist að því hvort umsóknin mín hafi borið árangur eða hvort ég hafi verið sett(ur) á biðlistann?

Þú getur alltaf fylgst með stöðunni á umsókninni þinni á Evrópsku ungmennagáttinni. Vinsamlegast geymdu afrit af DiscoverEU umsóknarkóðanum þínum vel og vandlega. Ekki deila honum (t.d. á samfélagsmiðlum) nema með þeim viðurkennda verktaka sem framkvæmdastjórnin og EACEA tilnefna. Þar að auki fá umsækjendur tilkynningu í tölvupósti þegar matsferlinu er lokið. Það er mikilvægt að hægt sé að ná í þig í gegnum tölvupóstinn sem þú tilgreindir í umsókninni.

A.10 Við hverju er búist af mér sem þáttakanda?

Framkvæmdastjórn ESB vill gjarnan heyra frá hinum ungu ferðamönnum og hvetja þá til þess að deila reynslu sinni og ævintýrum. Þess vegna geta allir þátttakendur orðið sendiherrar DiscoverEU. Þeir eru hvattir til að deila ferðaupplifun sinni í gegnum samfélagsmiðla eða með því að halda kynningu í skólanum sínum eða sínu nærsamfélagi. Þátttakendunum er boðið að taka þátt í opinbera #DiscoverEU Facebook Grouphópnum.

Myndbönd

DiscoverEU-fundir! - Kitla

 

DiscoverEU-fundir!

 

Valentine frá Frakklandi

Segir frá ferðaupplifun sinni með DiscoverEU í tveim myndböndum

 

DiscoverEU-hittingur í Nijmegen, grænni höfuðborg Evrópu - júlí 2019

Ungir DiscoverEU-ferðalangar hittust í tveggja daga dagskrá með þemanu sjálfbærni.

 

Maja frá Króatíu

Segir frá ferð sinni á vegum DiscoverEU: skipulagningu ferðarinnar, sjálfboðastarfið á George Enescu-hátíðinni og hefur góð ráð til þeirra sem vilja taka þátt í ævintýrinu!

 

Marcello frá Ítalíu

Tók þátt í viðburði Evrópsku ungmennavikunnar 2019 á Evrópuþinginu í Brussel og var viðstaddur fundinn um DiscoverEU

 

Natalia frá Tékklandi

Tók þátt í DiscoverEU-hittingnum í Tuusula (Finnlandi)

 

Andreea frá Rúmeníu

Tók þátt í Enescu-hátíðinni í Rúmeníu og hitti DiscoverEU-sjálfboðaliðana á hátíðinni

Subscribe to