Skip to main content
Submitted by Ioannis KOURTIS on
Draw lines
Yes
Color
#6a329f
Cities/Points
Name
Brno
Country
Czechia
Population
381000
Why visit?

Brno er fræg fyrir bókmenntasögu sína. Bohumil Hrabal og Milan Kundera, tveir af frægustu rithöfundum Tékklands, fæddust hérna. Einu sinni á ári skipuleggur hið virta forlag Větrné Mlýny Lestrarmánuð rithöfunda, stærstu bókmenntahátíð Mið-Evrópu. Með heillandi nýendurreisnararkitektúr og ævintýralegum kastala er næsta víst að Brno mun fanga athygli þína. Brno er líka ein af fimm borgum í Evrópu þar sem hús af gerðinni Werkbund Estates er að finna; en það er módernískt húsnæði sem markaði þáttaskil og var byggt á árunum 1927 til 1932 með það að markmiði að bjóða upp á vandað, ódýrt húsnæði í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar. Vegna menningarlegs mikilvægis hönnunarinnar voru húsin sameiginlega sæmd menningarminjamerki Evrópu. Þegar þú ert í Brno skaltu heimsækja gamla ráðhúsið og klifra upp 63 metra turninn til að njóta stórbrotins útsýnis yfir sögulegan miðbæ borgarinnar.

Image
Brno
Coordinates
49.2021611,16.507921
Tags with icon
UNESCO World Heritage List
Historic Architecture
Rich in Music
Plenty of Nature
Name
Prag
Country
Czechia
Population
1324000
Why visit?

Prag, sem er hjarta bóhemmenningar, er bókmenntaparadís með um 200 bókabúðum og 20 bókmenntakaffihúsum. Hún var útnefnd Bókmenntaborg UNESCO árið 2004 og ekki að ástæðulausu, enda eru bókmenntir í hávegum hafðar á hátíðum á borð við Rithöfundahátíð Prag (Prague Writers’ Festival) ög Örhátíðina í Prag (Prague Microfestival). Ríka byggingararfleifð hennar má sjá um alla borg – enda var gömlu miðborginni bætt á heimsminjaskrá UNESCO árið 1992. Dæmi um móderníska hönnun er að finna í Werkbund Estates borgarinnar, húsum sem hafa hlotið menningarminjamerki Evrópu og sem, eins og hliðstæðurnar sem finnast í Brno og Wrocław, miðuðu að því að leysa skort á vönduðu, ódýru húsnæði eftir fyrri heimsstyrjöldina. Heimsókn í Pragkastala er nauðsyn þegar þú ert í borginni, og að ganga niður Karlsbrúna er það líka.

Image
Prag
Coordinates
50.0598058,14.3255419
Tags with icon
European Capital of Culture
UNESCO World Heritage List
Historic Architecture
Notable Museums
Great for Performance Arts
Exciting Culinary Options
Name
Wrocław
Country
Poland
Population
641000
Why visit?

Rétt handan tékknesku landamæranna er Wrocław, borg hinna hundruð brúa. Wrocław á sína bókmenntaarfleifð. Árið 2016 var hún útnefnd Menningarhöfuðborg Evrópu og Heimsbókahöfuðborg UNESCO árið 2019 – sem hvort veggja er til vitnis um líflega bókmenntahefð hennar. Líkt og Brno og Prag er Wrocław önnur af þeim fimm borgum sem mynda fjölþjóðlega Werkbund Estate húsnæðið sem hefur hlotið menningarminkamerki Evrópu, sem veitir henni mikilvægan sess í þróun módernísks íbúðararkitektúrs.

Þegar þú ert í Wrocław skaltu heimsækja eina af 60 bókabúðum borgarinnar eða fara í Bókmenntahúsið í Wrocław, þar sem oft eru haldnir bókmenntaviðburðir á borð við ljóðaupplestur og bókakynningar. Ef þú ert í borginni að sumarlagi gætir þú hitt á eina af hátíðunum sem þar eru haldnar, eins og International Short Story Festival.

Image
Wrocław
Coordinates
51.1271647,16.9218245
Tags with icon
European Capital of Culture
UNESCO World Heritage List
Historic Architecture
Notable Museums
Great for Performance Arts
Name
Kraká
Country
Poland
Population
771000
Why visit?

Kraká er næststærsta borg Póllands. Gamli bærinn, þar á meðal konungskastalinn Wawel, á þann heiður að vera hafa verið útnefndur fyrsti heimsminjastaður UNESCO. Kazimierz-hverfið, sem eitt sinn var heimili allt að 90 samkunduhúsa gyðinga, er nú tákmynd gyðingaarfleifðar, sem fagnað er með árlegri menningarhátíð gyðinga. Kraká var í öðru sæti í Access City Award árið 2012 fyrir viðleitni sína til að bæta aðgengi í borginni, þrátt fyrir að þar séu margar sögulegar og menningarlega mikilvægar götur, byggingar og minnisvarðar. Bókmenntalega séð er Kraká er heimkynni Read PL! Project, rafbókavettvangs sem stuðlar að lestri með því að veita ókeypis aðgang að rafrænum útgáfum af metsölubókum og nýjum útgáfum. Árið 2013 var hún útnefnd Bókmenntaborg UNESCO – þetta leiddi til þess að nokkrar bókmenntaleiðir í borginni voru tileinkaðar frægum rithöfundum eins og Stanisław Lem og Joseph Conrad

Image
Kraká
Coordinates
50.0468548,19.9348336
Tags with icon
European Capital of Culture
UNESCO World Heritage List
Rich in Music
Name
Žilina
Country
Slovakia
Population
81000
Why visit?

Í norðvesturhluta Slóvakíu, nálægt landamærum Tékklands og Póllands, er borgin Žilina, borg þar sem bókmenntaarfur er samtvinnaður sögulegu mikilvægi. Hún er heimili Žilinská Kniha (Borgarbókar Žilina), sögulegs skjals frá 1378 sem inniheldur elsta þekkta eintak af slóvakískum skrifum. Maí og júní eru bestu mánuðirnir til að heimsækja Žilina því þá er hátíðin Old Town Festival, stærsti menningarviðburður í Slóvakíu, haldin. Hátíðin býður upp á fjölbreytt úrval þjóðlegs handverks og tónlistar, allt frá djassi og sveiflu til popps og rokks.

Image
Žilina
Coordinates
49.220257,18.6782906
Tags with icon
Notable Museums
Great for Performance Arts
Walkable City
Name
Košice
Country
Slovakia
Population
238600
Why visit?

Košice er næststærsta borg Slóvakíu og Menningarhöfuðborg Evrópu árið 2013. Vel varðveitt söguleg miðborg hennar er sú stærsta í landinu og þar er að finna margar verndaðar byggingar, aðallega í endurreisnar- og barokkstíl. Þrjár helstu listamiðstöðvar í borginni (Kulturpark, Kunsthalle og Amphitheatre) bjóða upp á allt frá myndlist til leiksýninga. Bókmenntahefð borgarinnar birtist í einum af frægum íbúum hennar; hinn frægi rithöfundur Sándor Márai, sem öðlaðist frægð á austurrísku-ungversku tímum borgarinnar.

Image
Košice
Coordinates
48.6975566,21.0991103
Tags with icon
European Capital of Culture
Historic Architecture
Great for Performance Arts
Name
Debrecen
Country
Hungary
Population
201100
Why visit?

Háskólaborg Ungverjalands, Debrecen, er líka griðastaður náttúrunnar – hún stendur á norðursléttunni miklu og Nagyerdei-garðurinn er friðsæll griðastaður með skóglendi, landmótuðum stígum, útilistaverkum og hjólastígum. Mótmælendakirkjan, sú stærsta í Ungverjalandi, er bæði byggingarlistarverk og tákn þjóðarstolts. Debrecen hefur verið heimili nokkurra áhrifamestu rithöfunda landsins, svo sem Magda Szabó, þess ungverska rithöfundar hvers verk hafa verið þýtt á flest tungumál, og þjóðskáldsins Sándor Petőfi.

Image
Debrecen
Coordinates
47.5310609,21.5200996
Tags with icon
Rich in Music
Exciting Culinary Options
Plenty of Nature
Walkable City
Name
Veszprém
Country
Hungary
Population
59100
Why visit?

Hún er kannski ekki eins þekkt og ungverska höfuðborgin, Búdapest, en Veszprém er falinn gimsteinn sem hefur upp á margt að bjóða í menningarlegu tilliti. Sem Menningarhöfuðborg Evrópu árið 2023 geislar borgin af ríkri menningarorku, sem endurspeglast í markmiði hennar að gera menningu sjálfbæra, nýstárlega og fyrir alla. Veszprém var útnefnd Tónlistarborg UNESCO árið 2019, verðlaun sem endurspegla hina fjölmörgu heimsfrægu lifandi tónlistarviðburði sem þar eru haldnir eins og VeszprémFest og Auer-fiðluhátíðina. Ef þú tekur lest til hins nálæga Balatonvatns í nágrenninu munt þú finna á ströndum þess minningarsafn tileinkað József Attila, einu frægasta ungverska ljóðskáldi 20. aldarinnar.

Image
Veszprém
Coordinates
47.1258945,17.837209
Tags with icon
European Capital of Culture
Historic Architecture
Great for Performance Arts
Plenty of Nature
Walkable City