Skip to main content

B.10 Mér hefur verið úthlutað ferðapassa og afsláttarkorti en ég get ekki farið. Geta vinir mínir samt farið án mín? Get ég framselt einhverjum öðrum ferðapassann minn?

Ef þér hefur verið úthlutað ferðapassa og áætlanir þínar hafa breyst geturðu ekki gert annað en draga þátttöku þína til baka (sjá reglu B.9), því þú getur ekki framselt ferðapassann þinn einhverjum vina þinna. Þar að auki er hver ferðapassi bundinn ákveðnum einstaklingi, honum er ekki hægt að breyta eða framselja til annarrar manneskju. 

A.1 Hvað er DiscoverEU?

DiscoverEU er verkefni á vegum Erasmus+ áætlunarinnar sem veitir 18 ára ungmennum tækifæri til að ferðast um Evrópu. Unga fólkið uppgötvar stórkostlegt landslag og óendanlega fjölbreytnina þegar borgir og bæir í Evrópu eru annars vegar, það hittir ferðalanga sem það á samleið með, öðlast aukið sjálfstæði og sjálfstraust og kynnist nánar því hvað felst í að tilheyra ESB. Ungt fólk getur sótt um í hinum reglubundnu umsóknarlotum sem eru auglýstar á Ungmennagáttinni og Evrópusambandið sér hlutskörpum umsækjendum fyrir ferðapassa og afsláttarkorti.
 

Subscribe to