B.7 Ég sótti um sem leiðtogi hóps en ég er sá eini sem fékk úthlutað ferðapassa. Hvernig stendur á því?
Ef þú sóttir um sem hópstjóri og umsóknin ber árangur en meðlimir hópsins hafa ekki fengið úthlutun, þá þýðir það að meðlimir hópsins kláruðu ekki að sækja um í tæka tíð á Evrópsku ungmennagáttinni, eða að þeir uppfylltu ekki skilyrðin um gjaldgengi, eða þeir smelltu ekki á „senda“ til að umsókn þeirra fengi skráningu í lok umsóknarferlisins. Aðeins þeir meðlimir hópsins sem sendu inn umsóknina sína fyrir lok umsóknarfrestsins með kóðanum frá hópstjóranum geta tekið þátt í DiscoverEU.