Skip to main content
Submitted by Beatriz RODRIG… on
Route Family
Draw lines
Yes
Color
#9832ED
Cities/Points
Name
Reykjavík
Country
Iceland
Population
122583
Why visit?

Samkvæmt skýrslu um hamingju í heiminum 2023 , eru Íslendingar þriðju hamingjusömustu þjóð í heiminum. Finndu út hvernig breytur eins og sterk samfélagsvitund, náttúruleg fegurð og ást fyrir bókmenntum stuðla að því að gera Ísland eitt af hamingjusömustu löndum heims. Þegar þú dvelur þar, kíktu á einn af vatnsafþreyingastöðunum, eins og Sundhöll Reykjavíkur, þar sem þú getur hitt heimafólk við eina af sinni þjóðlegu iðju og njóttu þess að fara í sánu eða gufubað eða fara í Heiðmörk, náttúrufriðland í útjaðri Reykjavíkur, til að eiga notalega stund á grænu, almenningssvæði með áhugaverðum kennileitum í fallegu landslagi.

Image
Reykjavík - Ísland
Coordinates
64.1334071,22.0083214
Tags with icon
Happy City
Spots to Swim
Name
Reykjavík
Country
Iceland
Population
122853
Why visit?

Samkvæmt skýrslu um hamingju í heiminum 2023 , eru Íslendingar þriðju hamingjusömustu þjóð í heiminum. Finndu út hvernig breytur eins og sterk samfélagsvitund, náttúruleg fegurð og ást fyrir bókmenntum stuðla að því að gera Ísland eitt af hamingjusömustu löndum heims. Þegar þú dvelur þar, kíktu á einn af vatnsafþreyingastöðunum, eins og Sundhöll Reykjavíkur, þar sem þú getur hitt heimafólk við eina af sinni þjóðlegu iðju og njóttu þess að fara í sánu eða gufubað eða fara í Heiðmörk, náttúrufriðland í útjaðri Reykjavíkur, til að eiga notalega stund á grænu, almenningssvæði með áhugaverðum kennileitum í fallegu landslagi.

Image
Reykjavík - Ísland
Coordinates
64.1333973,-22.017247
Tags with icon
Happy City
Spots to Swim
Name
Ósló
Country
Norway
Population
634293
Why visit?

Dveldu um stund í Ósló og finndu út hvers vegna Noregur skorar iðulega sem eitt af hamingjusömustu löndum í heiminum. Hin grænu svæði Óslóar (hún er grænasta höfuðborg Evrópu og vinningshafi Evrópskrar grænnar höfuðborgar árið 2019) og auðvelt aðgengi að náttúru eins og að Nordmarka-skógi (aðeins 20 mínútur frá borginni og er aðgengilegur með almenningssamgöngum) hefur örugglega eitthvað að segja. Vitað er að græn svæði eru góð fyrir andlega velferð. Auk þess er auðvelt að ganga eða hjóla um Ósló og sýnt hefur verið fram á að það að vera virk(ur) bætir skap okkar. Ef þú vilt gera þína hreyfingu með eitthvað fallegt fyrir augunum, farðu þá í göngutúr í Vigeland-höggmyndagarðinum, þar sem þú getur virt fyrir þér 200 höggmyndir úti við gjaldfrjálst, og það er opið allt árið um kring.

Image
Ósló - Noregur
Coordinates
59.8937521,10.6203103
Tags with icon
European Green Capital
Bikeable City
Walkable City
Plenty of Nature
Happy City
Former Olympic City
Name
Malmö
Country
Sweden
Population
344166
Why visit?

Meðan þú skoðar Malmö gangandi eða á hjóli, finnurðu líklega að með því að halda líkamanum á hreyfingu bætir það skap þitt. Eða kannski fær ferskur blær frá Øresund-sundinu eða útsýnið yfir vatnið þig til að brosa? Meðan þú ert í Malmö, ekki missa af Nýlistasafninu (aðgangur er gjaldfrjáls undir 19 ára aldri) eða Malmö Konsthall (gjaldfrjálst), þar sem þú getur sökkt þér í sköpunargáfuna til að sjá hvort tengslin milli listar og hamingju eigi við þig. Malmö var útnefnd sem hamingjusamasta borg í Svíþjóð árið 2016, þannig að meðan þú röltir um borgina, hví ekki reyna að koma auga á hvað lyftir geði íbúa? 

Image
Malmö - Svíþjóð
Coordinates
55.570058,12.8511647
Tags with icon
Bikeable City
Walkable City
Happy City
Access City Award Winner
European Green Capital Finalist
Name
Álaborg
Country
Denmark
Population
211684
Why visit?

Skelltu þér til Álaborgar og finndu út hvers vegna Danmörk er alltaf á lista sem eitt af þremur hamingjusömustu löndum heims og að ein rannsókn útnefndi Álaborg sem hamingjusömustu borgina í Evrópu. Það gæti tengst þeirri staðreynd að Álaborg er borg þar sem 84% íbúa telja sig örugga eða vegna þess að, eins og í Malmö, Álaborg er nálægt vatni, sem sýnt hefur verið fram á að sé gott fyrir hamingjuna. Þegar þú heimsækir borgina, ekki gleyma að kanna danska hugtakið hygge, sem er erfitt að þýða, en er tengt því að fara sér hægar, aftengjast (slökktu á símanum!) og eyða gæðatíma með sínum nánustu eða með sjálfri/sjálfum sér og góðri bók.

Image
Álaborg - Danmörk
Coordinates
57.025446,9.3169813
Tags with icon
Happy City
Walkable City